„Bíllinn er úlpa Íslendingsins“ – Ritstjórar gagnrýna áætlanir um Borgarlínu

Ritstjórarnir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson gagnrýndu harðlega forgangsröðun í samgöngumálum í nýjasta þætti Hluthafaspjalls ritstjóranna á Brotkast.is og sögðu umræðuna um Fjarðarheiðargöng og önnur jarðgöng á Austurlandi draga athyglina frá mun brýnni verkefnum á suðvesturhorninu.

Sigurður Már Jónsson benti á að stór samgönguframkvæmd á höfuðborgarsvæðinu væri þegar til staðar og tilbúin til framkvæmda.
„Sundarbrautarverkefnið, eitt og sér, er borðleggjandi verkefni,“ sagði Sigurður Már.

Auglýsing

Jón G. tók í sama streng og sagði athyglisvert að á meðan slíkt verkefni biði væri „verið að rífast um einhver göng á Austurlandi.“
Sigurður Már bætti við að slík framkvæmd væri gríðarlega kostnaðarsöm:
„Já, sem kosta 100 milljónir á hvern íbúa Austurlands.“

Í umræðunni lagði Jón G. áherslu á að hann teldi ekki þörf á að gera lítið úr þeim samgöngumannvirkjum sem þegar hefðu verið byggð á Austurlandi, en að forgangsröðun stjórnvalda væri engu að síður röng.

„Ég ferðast mikið um landið og Austfirðir státa af mörgum fallegum göngum, eins og Norðfjarðargöngum, en auðvitað þurfum við líka að fara ræða samgöngur á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Jón G.

Einkabíllinn er úlpa Íslendingsins

Hann gagnrýndi sérstaklega þá áherslu sem lögð hefur verið á Borgarlínuna, sem kynnt hefur verið undir heitinu Betri samgöngur.
„Það er bara talað alltaf um einhverja Borgarlínu, en hún er náttúrulega gjörsamlega vonlaus þessi Borgarlína. Hún er bara fjárfrek og Íslendingar vilja fyrst og fremst ferðast á einkabílnum,“ sagði Jón G.

Í því samhengi vitnaði hann í orð Ólafs Egilssonar leikritahöfundar.
„Einkabíllinn er úlpa Íslendingsins,“ sagði Jón G. og bætti við: „Við viljum vera á bíl.“

Hann benti jafnframt á að notkun almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu væri afar lítil.
„Það eru ekki nema 4% á höfuðborgarsvæðinu sem taka strætó og það eru helst þeir sem eru að fara á Happy Hour á daginn,“ sagði Jón G.

Umræðan í þættinum endurspeglar vaxandi gagnrýni á samgöngustefnu stjórnvalda, þar sem ritstjórarnir telja að raunverulegur vandi á höfuðborgarsvæðinu sé látinn sitja á hakanum á meðan dýrar framkvæmdir annars staðar á landinu fá forgang.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing