Bjarni segir ríkisstjórnina augljóslega í brekku – Segir verðbólgu, vaxtahækkanir og vaxandi atvinnuleysi kalla á stefnubreytingu

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, segir ríkisstjórnina augljóslega vera komna í brekku. Verðbólga hafi aukist, stýrivextir tekið að hækka á ný og atvinnuleysi vaxið á sama tíma og lítið hafi orðið úr boðuðum hagræðingaraðgerðum í ríkisrekstrinum.

Þetta kom fram í ítarlegu viðtali við Frosta Logason í Spjallinu þar sem rætt var um stöðu efnahagsmála, forsendubrest kjarasamninga, íslenska vinnumarkaðslíkanið og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-viðræður.

Auglýsing

„Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku í augnablikinu,“ sagði Bjarni.

Hann benti á að atvinnuleysi hefði aukist síðasta árið, vextir væru aftur teknir að hækka og verðbólgan væri komin langt yfir þau mörk sem miðað var við í kjarasamningunum.

„Ríkisstjórnin boðaði Evrópuleiðangurinn til þess að fjölga tækifærum á Íslandi og auka stöðugleika. Hún var rekin til baka með það sem hlýtur að vera mikill skellur fyrir stjórnarflokkana.“

„Mjög hart nei“

Bjarni segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar vera mun stærri ósigur fyrir Evrópusinnuðu stjórnarflokkana en gefið hafi verið í skyn.

Hann benti á að já-kosturinn hefði verið kynntur sem hófsamur könnunarleiðangur undir formerkjum þess að þjóðin ætti aðeins að samþykkja viðræður til að sjá hvað stæði til boða. Þannig hefði verið reynt að sameina sannfærða stuðningsmenn ESB-aðildar og fólk sem væri óákveðið um aðild en vildi fá samning á borðið.

Þrátt fyrir það hefði ekki tekist að ná meirihluta.

„Þetta er ofboðslega mikill ósigur fyrir Evrópusinnuða flokka. Það verður nú að segjast eins og er. Þetta er eiginlega algjör skellur fyrir Evrópusinnaða flokka sem eru leiðandi í ríkisstjórninni,“ sagði Bjarni.

„Mér finnst þetta vera mjög, mjög hart nei.“

Bjarni sagði að aðalatriði atkvæðagreiðslunnar hefði ekki einfaldlega verið að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram, heldur að ríkisstjórnin fengi umboð til að hefja aðildarviðræður.

„Þegar því er neitað af þjóðinni þá er það meiri háttar áfall fyrir þessa tvo stjórnarflokka og ríkisstjórnina í heild.“

Of lítið gert á útgjaldahliðinni

Bjarni gagnrýndi sérstaklega viðbrögð ríkisstjórnarinnar við versnandi stöðu í efnahagsmálum. Of mikil áhersla hefði verið lögð á að afla nýrra tekna með sköttum og gjöldum en of lítið gert til að draga úr útgjöldum og auka skilvirkni hins opinbera.

Hann sagði ný útgjöld á árinu 2025 hafa komið í veg fyrir að hægt hefði verið að skila hallalausum fjárlögum þrátt fyrir auknar tekjur ríkissjóðs.

„Það sem mér finnst kannski alvarlegast í stöðunni eins og hún er í dag er að mér finnst of lítið verið að gera á útgjaldahliðinni,“ sagði Bjarni.

Ríkisstjórnin hefði hafið kjörtímabilið með hástemmdum yfirlýsingum um hagræðingu, en lítið hefði síðan orðið úr varanlegum kerfisbreytingum.

„Þá finnst mér eiginlega ekkert hafa fæðst og ekkert svona varanlegt í kerfisbreytingum sem maður hefði haft væntingar um.“

Hann sagði langskynsamlegast að loka fjárlagagatinu með aðhaldi og hagræðingu fremur en frekari álögum á heimili og fyrirtæki.

Háir vextir farnir að bíta

Bjarni sagðist hafa talið að Seðlabankinn myndi ekki hækka stýrivexti í ágúst, þótt flestir markaðsaðilar hefðu gert ráð fyrir hækkuninni. Meginvextir bankans standa nú í 8 prósentum.

„Það er dálítið óþægilegt að við séum stödd í vaxtahækkunartímabili enn þá vegna þess að þetta leit bara nokkuð vel út fyrir ári síðan,“ sagði hann.

Verðbólgan hefði þá verið komin niður í 3,8 prósent og vaxtalækkunarferli hafið. Nú væri verðbólgan tæpum tveimur prósentustigum meiri og hvert skref frá 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans lengdi leiðina til baka.

Bjarni sagði áhrif háa vaxtastigsins nú farin að birtast í raunhagkerfinu með vaxandi atvinnuleysi og litlum hagvexti. Á sama tíma væru stjórnvöld enn að ræða frekari skattahækkanir án þess að taka nægilega til í ríkisrekstrinum.

„Þetta er ekki uppskrift að samkeppnishæfu Íslandi vegna þess að það er á endanum verðmætasköpunin sem mun drífa áfram lífskjörin.“

Vill halda lífi í kjarasamningunum

Verðbólga hefur farið yfir þau mörk sem skilgreind voru í forsendum langtímakjarasamninganna og því tekur nú við endurskoðun þeirra.

Bjarni sagðist telja skynsamlegt að reyna að halda samningunum á lífi en að jafnframt yrði að nýta tækifærið til að greina hvers vegna forsendurnar brugðust.

Hann sagði laun hafa þróast með allt öðrum hætti en upphaflega var samið um og að fyrirtækin greiddu nú hærri laun án þess að framleiðniaukningin sem átti að standa undir hækkununum hefði skilað sér.

„Þetta er miklu verri samningur fyrir fyrirtækin heldur en til stóð,“ sagði Bjarni.

Hann tók þó fram að atvinnurekendur bæru einnig ábyrgð og ættu að halda aftur af verðhækkunum eftir því sem samkeppni og rekstrarskilyrði leyfðu.

Segir vinnumarkaðslíkanið þurfa endurskoðun

Bjarni telur rót verðbólguvandans meðal annars liggja í ríkisfjármálum, húsnæðismarkaðnum, víðtækri verðtryggingu og þeirri aðferð sem notuð er við gerð kjarasamninga á Íslandi.

Hann sagði ítrekað hafa komið fyrir að samið væri um ákveðið „merki“ á almenna vinnumarkaðnum en að aðrir hópar, meðal annars hjá hinu opinbera, semdu síðar um mun meiri hækkanir.

Hagkerfið tæki ekkert tillit til þess þótt stjórnmálamenn ákvæðu að taka einstaka samninga „út fyrir sviga“. Kostnaðurinn og þensluáhrifin kæmu engu að síður fram.

Bjarni vísaði til fjölmargra skýrslna frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, OECD og Seðlabankanum þar sem bent hefði verið á veikleika íslenska vinnumarkaðslíkansins.

„Við erum einfaldlega ekki búin að þroska samtalið nægilega vel til þess að geta tekið betri ákvarðanir,“ sagði hann.

Með betri samstillingu mætti að hans mati varðveita sterkan kaupmátt launafólks en draga jafnframt úr þenslu, verðbólguvæntingum og vaxtastigi.

Verðtryggingin viðheldur vandanum

Bjarni sagði einnig nauðsynlegt að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku samfélagi.

Þótt verðtryggingin væri að hluta afleiðing langvarandi verðbólgu skapaði víðtæk notkun hennar sjálfvirkni í verðhækkunum. Hún drægi jafnframt úr virkni stýrivaxta og gerði Seðlabankanum erfiðara fyrir að ná verðbólgunni niður.

„Hún er alltof víðtæk í samfélaginu í dag,“ sagði Bjarni.

Hann sagði verðtryggingu tengjast vantrú á efnahagslegum stöðugleika til framtíðar. Vegna ótta við verðbólgu treystu lánveitendur sér illa til að bjóða óverðtryggð lán með föstum vöxtum til langs tíma.

Vill nýta gervigreind til að hagræða

Bjarni sagði að aukið aðhald þyrfti ekki eingöngu að felast í hefðbundnum niðurskurði. Stór tækifæri fælust í stafrænni þjónustu, betri nýtingu opinberra gagna og innleiðingu gervigreindar hjá ríki og sveitarfélögum.

Ólík upplýsingakerfi opinberra stofnana gætu oft ekki talað saman og mikill tími og fjármunir færu í óþarfa handavinnu og tvíverknað.

„Við þurfum virkilega að stíga inn í þennan nýja tæknivædda heim og fullnýta tækifærin þar til þess að fá meira fyrir það fé sem ríkið þarf til þess að reka sig.“

Bjarni sagði Ísland búa við einhver bestu lífskjör í heimi og sterkan kaupmátt í alþjóðlegum samanburði. Það breytti þó ekki þeirri staðreynd að ákveðin grunnkerfi skiluðu ekki nægilega góðum árangri.

Nú þegar þjóðin hefði hafnað ESB-viðræðum þyrftu Íslendingar að einbeita sér að því að leysa vandann innanlands.

„Vextirnir, húsnæðismarkaðurinn og víðtæk notkun verðtryggingar – þetta eru mál sem við ættum að vera að ræða. Það byrjar allt á samtalinu.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing