Björgunarsveitarmönnum sem tóku þátt í rýmingu Grindavíkur í morgun var ógnað með byssu er íbúi neitaði að yfirgefa bæinn.
RÚV sagði fyrst frá.
Atvikið átti sér stað þegar verið var að rýma bæinn vegna kvikuhlaups og yfirvofandi eldgoss.
Samkvæmt upplýsingum bárust hótanirnar frá einstaklingum sem neituðu að yfirgefa bæinn.
Í kjölfarið þurfti björgunarfólkið á áfallahjálp að halda, sem það fékk frá Rauða krossi Íslands.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfestir að tilkynningar hafi borist um hótanir, en vísar frekari fyrirspurnum til lögreglu.
Átta manns neituðu að yfirgefa svæðið
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að átta einstaklingar hafi neitað að fara og lögreglan hafi ekki þvingað neinn til brottfarar.
Hann segir slíkt ekki óalgengt við rýmingar.
Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra, staðfestir að skotvopn hafi verið notað til að ógna björgunarfólki.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð á vettvang.
Ekki fást nánari upplýsingar að svo stöddu.
Aðgerðir halda áfram í Grindavík með aðkomu lögreglu og sérsveitar.