Tvö börn í Ástralíu voru um tíma vistuð á heimili þar sem einnig bjó maður sem dæmdur hefur verið fyrir þrjú manndráp. Málið hefur vakið mikla reiði eftir að í ljós kom að yfirvöld höfðu vitað af stöðunni í nokkra mánuði án þess að grípa til aðgerða.
Málið kom upp í Nýja Suður-Wales þegar almenningur hafði samband við útvarpsstöðina 2GB og greindi frá því að börn, 12 og 14 ára gömul, byggju á heimili 79 ára einstaklings sem áður var þekktur sem Reginald Arthurell en gengur nú undir nafninu Regina Arthurell.
Yfirvöld vissu af málinu í desember
Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum hafði félagsmálaráðuneyti Nýja Suður Wales fengið upplýsingar um stöðuna í desember síðastliðnum. Ekkert gerðist þó í málinu fyrr en í þessari viku.
Kate Washington, ráðherra fjölskyldu- og samfélagsmála í fylkinu, baðst afsökunar á málinu í viðtali við 2GB.
„Þetta hefði aldrei átt að gerast og ég biðst innilegrar afsökunar á því sem gerðist,“ sagði Washington og bætti við að staðan væri algjörlega óásættanleg.
Vopnaðir lögreglumenn gerðu húsleit á þriðjudag og voru börnin þá fjarlægð af heimilinu.
Var dæmdur fyrir þrjú manndráp
Reginald Arthurell var árið 1995 dæmdur fyrir morð á fyrrverandi maka sínum, sem hann sló í höfuðið með viðarbút. Fyrir þann verknað hafði hann þegar hlotið tvo dóma fyrir manndráp.
Eftir að skilorðsbundinni lausn hans lauk árið 2021 var sett sérstök eftirlitsskipun á hann, meðal annars með rafrænu eftirliti og skilyrðum um meðferð vegna áfengisvanda.
Á sama tíma kom fram að hann lifði nýju lífi sem kona undir nafninu Regina Arthurell og hafði að sögn fjölmiðla haft í hótunum við fjölskyldu fórnarlambsins.
Rannsókn hafin á ákvörðunum stjórnvalda
Ráðuneytið hefur nú hafið formlega rannsókn á því hvernig málið þróaðist og hverjir bera ábyrgð á ákvörðuninni.