Bræður drukknuðu í sjónum við vinsæla ferðmannaströnd á Spáni – Föðurnum bjargað á síðustu stundu

Tveir unglingsbræður frá Bretlandi, 11 og 13 ára, létust á þriðjudagskvöld eftir að hafa orðið viðskila við föður sinn í sjónum við Llarga-ströndina í Salou, Tarragona.

Faðir þeirra, sem var með þeim í sjónum, var bjargað úr sjónum af viðbragðsaðilum.

Auglýsing

Allt tiltækt lið kallað út

Bresku drengirnir fóru í sjóinn með föður sínum um kvöldið og klukkan 20:47 að staðartíma fékk neyðarlína 112 tilkynningu um atvikið.

Alls voru sjö björgunarsveitir kallaðar út ásamt lögreglu, slökkviliði og sálfræðingum sem sinntu aðstandendum.

Samkvæmt upplýsingum frá katalónsku borgarayfirvöldum eru þetta 15. og 16. banaslysin sem hafa átt sér stað á ströndum Katalóníu síðan sumarherferð strandgæslunnar hófst 15. júní.

Nú þegar hafa fimm fleiri látið lífið en á sama tíma allt síðasta sumar.

Áminning til ferðamanna og heimamanna

„Borgaravarnir Generalitat vilja minna á mikilvægi þess að sýna ýtrustu varkárni á ströndum, sundlaugum og í ferskvatni á sumrin,“ sagði í yfirlýsingu yfirvalda. „Ef einhver virðist vera í vanda í vatni, ber tafarlaust að kalla til björgunarþjónustu eða hringja í 112.“

Þriðja banaslysið sama dag

Á sama degi, aðeins nokkrum kílómetrum frá Salou, lést 54 ára gamall þýskur ferðamaður við strönd í Cambrils.

Yfirvöld í Katalóníu hafa birt loftmynd af Llarga ströndinni og ítrekað mikilvægi þess að fylgjast með viðvörunum, veðuraðstæðum og hættum á hverri strönd.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing