Bresk fréttastöð heldur því fram að Ísland íhugi að flýta aðildarferli að ESB og sé að hraðri leið inn í sambandið

Breska YouTube fréttastöðin TLDR News EU virðist vita meira en íslenskur almenningur því stöðin heldur því fram að Ísland sé að að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið strax í ágúst. Um er að ræða greiningu miðilsins en ekki formlega tilkynningu frá íslenskum stjórnvöldum.

Í myndbandinu er því haldið fram að eftir að ESB stækkaði hratt á stuttum tíma sé sambandið nú að byrja að innlima ný aðildarríki. Ísland er nefnt sem eitt þeirra ríkja sem gæti gengið hraðar inn en önnur umsóknarríki, ef vilji er fyrir hendi.

Vísar til sögunnar og fyrri viðræðna

Auglýsing

Fréttastöðin rifjar upp að Ísland sótti um aðild árið 2009 í kjölfar bankahrunsins, en að viðræðum hafi verið frestað eftir stjórnarskipti og umsóknin síðar dregin til baka árið 2015. Síðan þá hafi málið ekkert verið á dagskrá opinberlega og kannanir lengi sýnt meiri andstöðu en stuðning við aðild.

TLDR bendir þó á að Ísland eigi þegar samleið með Evrópusambandinu í gegnum EES samninginn og Schengen samstarfið og hafi innleitt stóran hluta regluverks ESB nú þegar.

Efnahagur og öryggi notað sem rök

Í umfjölluninni er því haldið fram að umræðan hafi lifnað við á ný vegna efnahagslegrar óvissu og óöryggi í Evrópu eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Þar er vísað til hárra vaxta og verðbólgu á Íslandi og þess að lítil og opinn hagkerfi geti leitað stöðugleika í stærra efnahagssamstarfi.

Einnig er því haldið fram að aukin óvissa í bandarískri utanríkisstefnu, eftir að Donald Trump sneri aftur í embætti, hafi blásið lífi í umræðu um evrópskt varnarsamstarf. Fréttastöðin nefnir jafnframt áherslur framkvæmdastjórnar ESB undir forystu Ursulu von der Leyen á að styrkja sameiginlegt öryggi innan sambandsins.

Gæti gengið hratt fyrir sig

Samkvæmt því sem miðillinn fullyrðir gæti Ísland, ef þjóðin samþykkti að hefja viðræður á ný, gengið hraðar í gegnum aðildarferlið en flest önnur umsóknarríki. Ástæðan sé sú að landið hafi þegar tekið upp meirihluta laga og reglna ESB í gegnum EES amninginn.

Fréttastöðin vísar til erlendra heimilda sem telja að könnun frá árinu 2025 sýni að naumur meirihluti sé fylgjandi aðild, en bendir jafnframt á að sjávarútvegsmál hafi áður verið stærsta hindrunin og gætu orðið það áfram.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing