Bresk stjórnvöld banna hægri sinnuðum áhrifavöldum að koma til landsins til að tala á fyrirhuguðum mótmælum Tommy Robinson

Bresk stjórnvöld hafa bannað nokkrum þekktum hægrisinnuðum áhrifavöldum að koma til Bretlands fyrir fyrirhuguð mótmæli Tommy Robinson í London. Málið hefur vakið mikla gagnrýni og umræðu málfrelsi í landinu og vald stjórnvalda til að ákveða hverjir fá að tala opinberlega.

Meðal þeirra sem hafa verið stöðvuð eru Bandaríkjamennirnir Joey Mannarino og Valentina Gomez, auk hollenska áhrifavaldsins Evu Vlaardingerbroek. Ada Luch, spænskur áhrifavaldur, hefur einnig greint frá því að henni hafi verið bannað að koma til landsins, þrátt fyrir að hún hafi eingöngu rætt þessi mál við Robinson í einkaskilaboðum.

Auglýsing

Ferðaleyfi afturkölluð

Samkvæmt breskum fjölmiðlum hafa yfirvöld afturkallað svokölluð ETA ferðaleyfi nokkurra áhrifavalda á þeim grundvelli að nærvera þeirra í Bretlandi væri „ekki til þess fallin að þjóna almannahagsmunum“.

Joey Mannarino greindi sjálfur frá því að leyfi hans hefði verið afturkallað og sakaði bresku ríkisstjórnina um að kæfa málfrelsi. Mannarino hefur áður vakið athygli fyrir ummæli sín um innflytjendur og íslam. Breskir fjölmiðlar rifjuðu meðal annars upp færslur þar sem hann kallaði Evrópu íslamskt nauðgunarbæli.

Valentina Gomez hefur einnig verið bannað að koma til Bretlands samkvæmt fjölmiðlum þar í landi. Hún hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir ögrandi pólitít, meðal myndskeið þar sem hún brennir kóraninn og kveikir í bókum tengdum LGBT málefnum. Þá vakti hún einnig mikla athygli eftir að hafa truflað viðburð múslima í Texas og kallað íslam trúarbrögð nauðgana, sifjaspella og barnagirndar.

Hollenski áhrifavaldurinn Eva Vlaardingerbroek hefur einnig verið meinað að taka þátt í mótmælum Tommy Robinson. Vlaardingerbroek hefur á síðustu árum orðið einn þekktasti hægrisinnaði áhrifavaldur Evrópu og hefur verið áberandi í umræðu um innflytjendamál, fjölmenningu og íslam í Evrópu.

Spænski áhrifavaldurinn Ada Luch hefur sömuleiðis verið áberandi í heimalandi sínu að ræða svipuð málefni.

Mikil umræða um málfrelsi

Fjölmargir segja bannið dæmi um að bresk stjórnvöld séu farin að takmarka pólitíska tjáningu og loka landinu fyrir skoðunum sem stjórnvöld séu ósammála eða telji óæskilega. Gagnrýnendur segja hins vegar að um sé að ræða einstaklinga sem hafi ítrekað farið yfir mörk almennrar umræðu með hatursorðræðu og öfgafullum yfirlýsingum.

Breska innanríkisráðuneytið hefur ekki viljað tjá sig opinberlega um málið.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing