Bresk stjórnvöld hafa kynnt umfangsmiklar aðgerðir gegn dreifingu kynferðislegra mynda sem búnar eru til með gervigreind, þar á meðal svokallaðri „nudification“ tækni.
Aðgerðirnar beinast bæði að einstaklingum og tæknifyrirtækjum og hafa vakið miklar pólitískar deilur, ekki síst vegna mögulegrar aðkomu samfélagsmiðilsins X.
Eftirlitsstofnun fjarskipta og fjölmiðla í Bretlandi hefur hafið formlega rannsókn á notkun gervigreindar á X sem gert hefur notendum kleift að búa til kynferðislegt myndefni.
Ráðherra tæknimála í Bretlandi tilkynnti í þinginu að það yrði refsivert að búa til eða dreifa kynferðislegum myndum af fólki án samþykkis þess, jafnvel þótt myndirnar séu gerðar með gervigreind.
Lögin taka gildi strax í þessari viku.
Einnig mun verða ólöglegt að bjóða upp á tækni sem sérstaklega eru hönnuð til slíkrar myndagerðar.
Ábyrgð lögð á tæknirisana
Ráðherrann lagði áherslu á að ábyrgðin hvíli ekki eingöngu á einstaklingum heldur einnig á þeim vefsíðum sem hýsa eða dreifa efninu.
Þar var sérstaklega vísað til samfélagsmiðla og hvatt til þess að þeir geri tafarlaust ráðstafanir til að koma til móts við ný lög um öryggi kvenna og stúlkna á netinu.
Ef það verður ekki gert segist ríkisstjórnin tilbúin að grípa til harðari úrræða.
Harðorð gagnrýni stjórnarandstöðunnar
Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega og sakað hana um óraunhæfar kröfur.
Skuggaráðherra tæknimála sagði óraunhæft og hættulegt að ræða bann á miðli með milljónir notenda og varaði við að slíkt gæti grafið undan tjáningarfrelsi og truflað baráttuna gegn alvarlegum glæpum á netinu.
Einnig er tekið fram að gervigreind X, er alls ekki eina tólið sem getur beitt þessari tækni, en flestar gervigreindir eru færar um slíkt.
Því er spurt hvers vegna samfélagsmiðillinn X sé sérstaklega tekinn fyrir.