Breska dagblaðið Daily Mail fjallar um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi og segir hana mikið áfall fyrir Evrópusambandið

Breska dagblaðið Daily Mail fjallar um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi og segir hana mikið áfall fyrir Evrópusambandið.

Blaðið segir í fyrirsögn sinni að Ísland hafi kosið að standa utan Evrópusambandsins og að almenningur hafi hafnað nánari tengslum við Brussel vegna áhyggna af fiskveiðum og Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Auglýsing

Umfjöllunin hefur vakið mikla athygli hjá lesendum blaðsins og höfðu um fjögur þúsund athugasemdir verið skrifaðar við hana þegar þetta var skrifað.

Kosið um viðræður en ekki aðild

Í inngangi greinarinnar segir að Íslendingar hafi hafnað viðræðum um að „ganga aftur í Evrópusambandið“.

Ísland hefur þó aldrei verið aðildarríki sambandsins. Þá var ekki kosið um inngöngu í ESB heldur aðeins hvort hefja ætti aðildarviðræður að nýju.

Alls sögðu 52,8 prósent kjósenda nei við því að hefja viðræðurnar að nýju en 47,2 prósent sögðu já.

„Mikið áfall fyrir Brussel“

Daily Mail segir niðurstöðuna mikið áfall fyrir stækkunaráform Evrópusambandsins. Ráðamenn í Brussel hafi talið Ísland auðveldan og áhættulítinn kost sem gæti orðið sambandinu mikilvægur liðsauki á norðurslóðum.

Blaðið leggur áherslu á með þessari ákvörðun hafi Ísland tryggt fullveldi sitt og yfirráð yfir fiskimiðunum. Þá er haft eftir Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB, að taka hefði þurft sérstakt tillit til íslenskra fiskveiða og landbúnaðar í mögulegum viðræðum.

Daily Mail tengir umræðuna einnig við óvissu í alþjóðamálum, hótanir Trumps í garð Grænlands og aukið mikilvægi norðurslóða.

Úrslitin sett í Brexit samhengi

Nigel Farage, leiðtogi Reform UK og einn þekktasti Brexit-sinni Bretlands, er meðal þeirra sem fögnuðu niðurstöðunni. Hann óskaði Íslendingum til hamingju með að hafa kosið að halda sjálfstæði sínu.

Nigel Farage og Marine Le Pen fagna íslenska „nei-inu“ – niðurstaðan orðin táknmynd fyrir evrópska ESB-andstæðinga

Samhliða fréttinni birtir Daily Mail grein eftir Daniel Hannan, fyrrverandi þingmann breska Íhaldsflokksins, með fyrirsögninni:

„Ef jafn lítil þjóð og Ísland getur stolt staðið ein og óstudd, hvers vegna ætti nokkur maður að vilja snúa Brexit við?“

Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að úrslitin verði virt og aðildarviðræður verði ekki teknar upp á kjörtímabilinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing