Ríkisstyrktur tölvuleikur sem ætlaður er ungmennum á aldrinum 11 til 18 ára hefur vakið mikla gagnrýni í Bretlandi eftir að í ljós kom að hann setur gagnrýnar spurningar um innflytjendastefnu og samfélagsmál í samhengi við öfgahyggju og hryðjuverkaógn.
Leikurinn, sem ber heitið Pathways, er gagnvirkt “fræðsluverkefni“ sem notað er í skólum og er að hluta fjármagnað af breska innanríkisráðuneytinu í gegnum Prevent áætlunina svonefndu, sem ætlað er að koma í veg fyrir öfgahyggju og hryðjuverk.
Í leiknum stýra þátttakendur hvítum ungling, strák eða stelpu, sem stendur frammi fyrir ýmsum aðstæðum í skóla- og netsamfélagi.
Val leikmannsins ræður því hvort persónan sé talin færast nær „öfga-hægrisinnaðri hugmyndafræði“.
Séu “röng“ svör valin getur persónan þín í leiknum lent í að vera vísað áfram til Prevent kerfisins, fengið ráðgjöf vegna öfgafullra hugsana eða jafnvel verið vísað til sérfræðinga í hryðjuverkavörnum.
Vali spilenda stýrt
Í leiknum eru valkostir litakóðaðir, þar sem “góð“ svör eru græn en “slæm“ rauð.
Þar á meðal eru atriði í leiknum þar sem persónan þarf að velja hvort hún samþykki að vera lakari námslega en samnemandi af öðrum uppruna eða kenni innflytjendum um að stela starfinu sínu.
Jafnvel það eitt að rannsaka tölfræði eða efni sem tengjast um innflytjendamálum er sett fram sem neikvætt eða varasamt val.
Leikurinn er einnig með atriði þar sem fullyrt er að stjórnvöld svíki hvíta Breta og að innflytjendur fái forgang í húsnæðismálum.
Ef leikmaður velur að taka þátt í umræðunni eða leita frekari upplýsinga er því lýst sem áhættusamri hegðun sem geti tengst ólöglegum öfgahópum.
Segja leikinn vera áróður
Gagnrýnendur segja leikinn líkja saman eðlilegri samfélagsumræðu og hryðjuverkum og óttast að ungmenni læri að forðast gagnrýna hugsun af ótta við refsingu.
Hönnuðir leiksins segja markmiðið vera að efla fjölmiðlalæsi og gagnrýna hugsun og halda því fram að verkefnið sé unnið sjálfstætt þrátt fyrir ríkisstuðning.
Vinsælasti karakterinn varasöm
Að lokum hefur komið fram að Pathways hafi verið aftengdur tímabundið eftir að óvænt þróun varð meðal notenda, langvinsælasta persóna leiksins reyndist vera Amelía, sú sem átti upphaflega að vera helsti skúrkur sögunnar.
Vinsæld hennar vakti áhyggjur hjá framleiðendum leiksins og varð það til þess að ákveðið var að taka hann tímabundið úr notkun á meðan innihald og framsetning væru endurskoðuð en nokkrir kaflar með henni hafa verið fjarlægðir.
Blaðamaður prófaði leikinn til að sjá hvað til er í gagnrýninnni og hægt er að sjá framvindu spilunarinnar hér fyrir neðan en ef þú vilt sjálf/ur sjá hvar þú stendur og hvar þú myndir enda, er hægt að spila leikinn hérna.