Bretar undirbúa tilraunir til að stöðva sólarljósið – ný nálgun gegn hlýnun jarðar

Breska ríkisstjórnin hyggst á næstunni veita leyfi fyrir tilraunum til að deyfa sólarljós sem hluta af baráttunni gegn hnattrænni hlýnun.

Að sögn Daily Mail og fjölmörgum öðrum miðlum hefur Advanced Research and Invention Agency (ARIA), nýsköpunar- og rannsóknarstofnun stjórnvalda, tryggt sér 50 milljónir punda fjámögnun fyrir verkefnið verkefnið.
Tilraunirnar, sem munu fyrst um sinn fara fram utandyra á litlum skala, fela í sér aðferðir eins og að sprauta ögnum í lofthjúpinn eða lýsa upp ský til að varpa meira sólarljósi frá jörðu.

Auglýsing

Markmið rannsóknanna er sagt vera að afla praktískra gagna sem vanti í umræðuna um loftlagsmótandi tækni eða geoengineering.

„Allt verður öruggt frá upphafi“

Prófessor Mark Symes, verkefnisstjóri ARIA, segir að aðeins verði ráðist í afturkræfar og tímabundnar tilraunir sem séu öruggar að öllu leyti.

„Við munum ekki fjármagna neitt sem losar eiturefni út í umhverfið,“ segir hann.

Til viðbótar við tilraunir utandyra verður einnig fjárfest í líkanagerð, prófunum innandyra og athugunum á viðhorfi almennings til slíkra loftslagsráðstafana.

Nýjar aðferðir við að kæla jörðina

Ein helsta aðferðin sem skoðuð er kallast „Sunlight Reflection Methods“ (SRM), sem felur meðal annars í sér að sprauta smáum ögnum upp í heiðhvolfið til að endurvarpa sólarljósi.

Aðrar aðferðir eru t.d. „Marine Cloud Brightening“, þar sem sjósalt er sprautað í loftið til að auka endurkast frá lágskýjum.

Prófessor Jim Haywood frá Háskólanum í Exeter bendir á að mengun frá skipaumferð hafi þegar sýnt áhrifin, skýin yfir skipaleiðum séu mun bjartari en annars staðar. „Við höfum séð þetta í rauntíma, bæði frá skipum og eldgosi á Íslandi 2014 sem losaði brennisteinsdíoxíð sem breytti skýjum og kældi jörðina.“

Vonast til innleiðingar innan áratugar

Dr. Sebastian Eastham frá Imperial College London segir að fyrirliggjandi mengun frá flugvélum sýni að kæling sé möguleg með tækni nútímans, þó margt þurfi að rannsaka áður en slíkar aðgerðir verða notaðar í stórum stíl.

Vonir standa til að ef tilraunirnar heppnast, verði þær stækkaðar og innleiddar innan tíu ára. Hins vegar eru slíkar loftslagsaðgerðir umdeildar og gagnrýnendur vara við mögulegum ófyrirséðum afleiðingum.

Dyggir lesendur Nútímans kannast hugsanlega við þessar fréttir án þess þó að gera sér grein fyrir því hvaðan minningin kemur en í seríu 6, þætti 25 af The Simpsons er þetta nákvæmlega það sem Mr. Burns gerir við bæinn Springfield, svo enn og aftur virðast Simpsons spá rétt fyrir um framtíðina.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing