Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi Aþenu, hefur birt opið bréf sem hann sendi Pétri Maack, formanni Sálfræðingafélags Íslands.
Þar gagnrýnir hann harðlega stuðning Péturs við Þóru Sigfríði Þórisdóttur og þá úttekt sem hún gerði um starfsemi hans á vegum ÍSÍ en Nútíminn hefur áður fjallað um það mál.
Brynjar Karl gagnrýnir harðlega úttekt á störfum sínum og sakar skýrsluhöfund um glæpsamlega hegðun
Segir Brynjar að Pétur hafi opinberlega lýst yfir stuðningi við Þóru án þess að hafa tekið þátt í sjálfri rannsókninni.
Brynjar lýsir einnig vantrausti á málsmeðferðina og spyr hvar hann geti leitað réttar síns, sérstaklega í ljósi þess að ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins sé dóttir forseta ÍSÍ, sem pantaði umrædda skýrslu
Brynjar heldur því fram að umsögn Þóru sé byggð á rangfærslum, illa völdum heimildum og markvissri „cherry-picking“ aðferðafræði þar sem aðeins þeir aðilar sem gagnrýna hann fái að koma að máli.
Allri jákvæðri umsögn hafnað
Hann segir að yfir hundrað jákvæðar umsagnir hafi verið sendar Þóru, en þeim hafi verið hafnað, á meðan sex nafnlausar umsagnir hafi vegið þungt í skýrslunni en svo vildi til að þær voru neikvæðar.
Hann gagnrýnir einnig sérstaklega að ekki hafi verið rætt við leikmenn, foreldra, samstarfsfólk eða heimildarmyndagerðarfólk sem unnið hafi náið með honum, og fullyrðir að slík vinnubrögð séu í algerri andstöðu við faglegar rannsóknaraðferðir.
Í bréfinu rifjar Brynjar einnig upp samtal sitt við Pétur þar sem sá síðarnefndi hafi talað um meint áföll leikmanna.
Brynjar spyr hvers konar faglegrar ábyrgðar sé að vænta af sálfræðingi sem í krafti menntunar sinnar kalli eftir aðgerðum án þess að kanna staðreyndir málsins í heild.
„Það dylst engum að cherry-picking lýsir best þeirri aðferðarfræði sem var beitt,“ skrifar Brynjar, og kallar eftir opinberum umræðum við Pétur Maack um fagmennsku og réttmæti skýrslunnar.
Spyr hvert eigi að leita
Brynjar lýsir einnig vantrausti á málsmeðferðina og spyr hvar hann geti leitað réttar síns, sérstaklega í ljósi þess að ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins sé dóttir forseta ÍSÍ, sem pantaði umrædda skýrslu.
Hann endar bréfið á því að undirstrika að hann sé ekki hafinn yfir gagnrýni, en krefjist að hún sé byggð á staðreyndum og framkvæmd af óháðum og faglegum aðilum.
„Fullyrðingar um að enginn skuggi sé á starfi Þóru eru fáránlegar og lítilsvirðandi gagnvart öllum sem hafa raunverulega upplifað ófagleg vinnubrögð hennar,“ segir hann.