Brynjar Karl segir sífellt fleiri lýsa siðlausum vinnubrögðum Samskiptafulltrúa

Brynjar Karl Sigurðsson ritar harðorðan pistil á Facebook þar sem hann sakar Þóru Sigfríði Ingólfsdóttur og embætti Samskiptafulltrúa um valdníðslu og ólýðræðisleg vinnubrögð.

Nútíminn hefur fjallað um fyrri yfirlýsingar Brynjars um málið.

Brynjar Karl gagnrýnir harðlega úttekt á störfum sínum og sakar skýrsluhöfund um glæpsamlega hegðun

Auglýsing

Hann segir sífellt fleiri hafa leitað til sín eftir sambærilega reynslu og að traust á embættinu sé algjörlega rofið.

„Það bætist stöðugt í hóp fólks sem leitar til mín og hefur lent í því að embætti Þóru sé beitt gegn þeim með valdníðslu, þvingunum og siðlausum vinnubrögðum,“ skrifar Brynjar.

Hann gagnrýnir sérstaklega að ekki sé um gagnsæja málsmeðferð að ræða heldur sé notast við nafnlausar, óútskýrðar ásakanir og að þeir sem ásakaðir séu fái ekki tækifæri til að svara fyrir sig.

Segir lítið um siðferði hjá embættinu

Í pistlinum veltir hann fyrir sér hvort íslenskt samfélag búi við kerfi þar sem embætti geti starfað án virks eftirlits, án ábyrgðar og án þess að bera virðingu fyrir réttaröryggi borgaranna.

„Ef þetta væri lögreglurannsókn og þeir myndu segja: ‘Nei, við ætlum bara að yfirheyra vitni sem vitna um refsiverða háttsemi mannsins'“

„Búum við í einhvers konar bananalýðveldi þar sem kaos ríkir og virðing fyrir valdinu er engin?“ spyr hann.

Medúsa sem spegill kerfis sem hefur snúist gegn fólki

Brynjar notar goðsögnina um Medúsu sem myndlíkingu fyrir þróun embættisins.

Hann líkir Þóru við gyðjuna Aþenu sem breytir fórnarlambi í skrímsli til að vernda – en sköpunin verður að ógnum í sjálfu sér. Hann segir embætti sem upphaflega átti að veita skjól og vernd hafa snúist upp í kúgandi vald.

„Fyrrum fórnarlambið varð að ofsækjanda. Hún hóf að hata heiminn sem hafði brugðist henni og gat ekki lengur greint milli þeirra sem vildu henni vel og þeirra sem vildu henni illt.“

„Þetta er glæpsamlegt“

Með færslunni birtir Brynjar brot úr viðtali við Frosta Logason þar sem þeir ræða aðferðafræði embættisins. Báðir líkja þeir starfseminni við brot á grundvallarreglum réttarríkisins.

„Ef þetta væri lögreglurannsókn og þeir myndu segja: ‘Nei, við ætlum bara að yfirheyra vitni sem vitna um refsiverða háttsemi mannsins,’ þá gildir það ekki, sko. Þetta er geðveiki,“ segir Frosti.

„Ef þú ert orðin embættismaður, þetta er glæpur. Það ætti að vera refsing við svona hlutum,“ segir Brynjar.

Hann segir einnig að fólki sé frjálst að efast um sig á allan hátt en slíkt verði að vera byggt á sanngjörnu mati en ekki því sem aðilar úti í bæ hafa að segja.

Krefst opinberrar rannsóknar

Brynjar lýsir yfir vantrausti á embættið og krefst þess að sjálfstæð rannsókn fari fram á störfum Þóru og hennar teymis.

Hann segir fólkið í Aþenu hafa lifað af alla gagnrýni og skoðun síðasta áratug en spyr hvort embætti Samskiptafulltrúa geti gert slíkt hið sama.

„Hugur minn er hjá þeim sem hafðir eru fyrir rangri sök og hafa ekki slagkraft til að verja sig.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing