Brynjar segir ekki hægt að kenna skólunum einum um PISA hrunið – „Það er helvíti þykkt í aumingjavæðingunni“

Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og stofnandi Aþenu, segir ekki hægt að kenna skólakerfinu einu um versnandi námsárangur íslenskra barna. Fullorðnir verði einnig að horfast í augu við menninguna sem þeir hafi skapað í kringum börn, þar sem sífellt minni kröfur séu gerðar en ábyrgðinni varpað yfir á kennara, þjálfara og kerfið.

Tilefni skrifa Brynjars eru vitaskuld nýjar niðurstöður PISA 2025. Þær sýna að 44 prósent íslenskra 15 ára nemenda ná ekki grunnhæfni í lesskilningi og 38 prósent ekki grunnhæfni í stærðfræði eða vísindum.

Auglýsing

„Fjandans lítil verkfæri“

Brynjar segir metnaðarleysi og skort á ábyrgð á heimilum geta unnið gegn starfi jafnvel bestu kennara og þjálfara.

„Ef metnaðurinn heima er lítill eða enginn, kröfurnar litlar og ábyrgðinni stöðugt hent yfir á skólann, kennarann, þjálfarann eða „kerfið“, þá hafa jafnvel frábærir kennarar og þjálfarar fjandans lítil verkfæri til að vinna með.“

Ekki sé hægt að byggja upp færni, aga, seiglu og metnað á nokkrum klukkustundum á dag ef allt annað umhverfi barnsins vinni gegn því.

Segir að nú sé litið á meðvirkni sem kost

Brynjar segir þjálfara sem vilja gera kröfur og fá börn til að bæta sig mæta sífellt meiri mótspyrnu. Staðan sé jafnvel orðin þannig að það sé kostur fyrir þjálfara að vera „meðvirk rola“ en ókostur að vilja keyra upp metnað.

Hann tekur fram að margir foreldrar styðji við metnaðarfullt starf en segir aðra komast upp með framkomu sem drepi niður áhuga þjálfara á að gera kröfur til barnanna.

„Ég þekki ekki einn einasta metnaðarfullan þjálfara sem talar ekki um sturlunina í foreldramenningunni. Og enginn af þeim gömlu segir annað en að þetta hafi versnað gríðarlega.“

Að hans sögn veigri þjálfarar sér við að ræða vandann opinberlega vegna þess að „foreldrakúltúrinn á Íslandi“ sé einn best verndaði hagsmunahópur landsins.

Þreyttir á að mega ekki gera kröfur

Brynjar segir marga af bestu kennurum og þjálfurum sem hann þekkir vera orðna þreytta. Þreytan sé ekki vegna barnanna heldur vegna þess að þeim sé sífellt þrengri stakkur sniðinn til að gera kröfur.

Samfélagið tali mikið um réttindi, stuðning og vellíðan en mun minna um skyldur, ábyrgð og væntingar.

„Eldgamall sannleikur sem allir eru hættir að tala um: Kröfur eru umhyggja. Ekkert brýtur barn hraðar niður en að finna að enginn trúi því að það geti meira og sé til í að mæta þeim kröfum með alvöru þjálfun.“

Brynjar segir foreldra, kennara og þjálfara þurfa að geta staðið saman og sagt börnum að þau geti meira. Annað sé að hans mati að vanvirða þau með því að ræna þau tækifærum til að þroskast.

Segir Aþenu hafa verið stofnaða gegn menningunni

Brynjar segir körfuboltafélagið Aþenu hafa verið stofnað sérstaklega til höfuðs þessari menningu og til að skapa umhverfi þar sem kröfur, ábyrgð, metnaður og umhyggja geti farið saman.

Hann segir mótspyrnu óhjákvæmilega þegar reynt sé að breyta ríkjandi gildum og viðmiðum. Hún komi ekki aðeins frá kerfinu heldur úr öllum áttum.

„Já og gangi okkur vel að breyta ríkjandi kúltúr án átaka. Það gerist ekki. Það er helvíti þykkt í aumingjavæðingunni á Íslandi það get ég sagt ykkur.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing