Brynjar segir „tíma liðleskju stjórnmála“ liðinn

Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi og fyrrverandi alþingismaður, segir stjórnmálaelítuna í vestrænum lýðræðisríkjum standa ráðþrota frammi fyrir afleiðingum eigin stefnu. Hefðbundnir hægriflokkar verði að sýna hugrekki og horfast í augu við raunveruleikann, ætli þeir ekki að hverfa af sjónarsviðinu.

Þetta kemur fram í beittum pistli sem Brynjar birti á Facebook.

Auglýsing

Hann segir ákveðna skemmtun mega hafa af því að fylgjast með stjórnmálaelítunni í Evrópu „kveljast í getuleysi sínu“ um þessar mundir.

Brynjar segir þessa elítu gjarnan kalla sig frjálslynd umbótaöfl, þótt hún samanstandi að hans mati í grunninn af hefðbundnum sósíalistum. Þessi öfl hafi verið ráðandi í vestrænum ríkjum alla þessa öld og rúmlega það.

Á þeim tíma hafi ríkin safnað skuldum sem aldrei fyrr, opnað landamæri sín og veitt fólki alls staðar að úr heiminum aðgang að almannatryggingakerfum sem það hafi aldrei greitt til. Þá hafi stjórnvöld búið til orkukreppu í nafni loftslagsmála og skattlagt nánast allt sem hreyfist.

Síðan skilji sömu stjórnmálamenn ekkert í því að kerfin séu farin að riða til falls.

„Svona mætti lengi telja og skilja svo ekkert í því að allt sé að hrynja fyrir framan augun á þeim,“ skrifar Brynjar.

Þeir sem benda á vandann stimplaðir öfgamenn

Brynjar segir elítuna njóta stuðnings hefðbundinna fjölmiðla og hins svokallaða háskólasamfélags. Hún bregðist síðan af mikilli hörku við þegar einhver bendir á að „keisarinn sé í engum fötum“ og krefjist þess að stjórnmálin horfist í augu við raunveruleikann.

Slíkir einstaklingar og stjórnmálaflokkar séu gjarnan stimplaðir sem hægri öfgamenn og sagðir ógna lýðræðinu, þótt fæstir þeirra teljist að mati Brynjars sérstaklega langt til hægri samkvæmt hefðbundnum skilningi hugtaksins.

Hann segir þetta þekktan hræðsluáróður sem geti aðeins virkað í takmarkaðan tíma.

Vaxandi fylgi við Alternative für Deutschland í Þýskalandi og flokk Marine Le Pen í Frakklandi eigi sér raunverulegar pólitískar og samfélagslegar skýringar. Ekki sé hægt að kenna TikTok eða öðrum samfélagsmiðlum um þróunina.

Áður fordæmdir flokkar komnir til áhrifa

Brynjar rifjar upp að bæði norski Framfaraflokkurinn og Danski þjóðarflokkurinn hafi á sínum tíma verið skilgreindir af stjórnmálaelítunni sem hættulegir hægri öfgaflokkar.

Sama hafi gilt um Svíþjóðardemókratana og stjórnmálaöflin í kringum Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu.

Þessir flokkar hafi nú komist til valda eða öðlast veruleg pólitísk áhrif án þess að sýna merki um þá öfgahyggju eða ógn við vestrænt lýðræði sem andstæðingar þeirra hafi varað við.

Brynjar segir að tímabil veikburða og kjarklausra stjórnmála kunni nú að vera á enda.

„Tími liðleskju stjórnmála er sennilega liðinn og hefðbundnir hægriflokkar verða að hafa hugrekki til að horfast í augu við veruleikann eigi þeir ekki að hverfa í vestrænum lýðræðisríkjum,“ skrifar Brynjar að lokum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing