Tveir ungir menn sem voru dæmdir fyrir hrottalega hópnauðgun á hinni 18 ára gömlu Milly í Frakklandi en fengu refsingu sína mildaða úr tíu ára fangelsi í átta við áfrýjun.
Þriðji maðurinn, sem var dæmdur fyrir hlutdeild í nauðguninni, fékk jafnframt refsingu sína stytta úr sex árum í fimm. Ástæðan fyrir mildun dómanna hefur ekki komið fram.
Hámarksrefsingin lækkuð um tvö ár
Mennirnir þrír voru allir ólögráða þegar brotið var framið aðfaranótt 4. mars 2020 skammt frá París.
Dómstóll fyrir ungmenni dæmdi tvo þeirra í tíu ára fangelsi 11. febrúar síðastliðinn fyrir hópnauðgun. Það var þyngsta refsing sem hægt var að dæma þá til vegna aldurs þeirra þegar brotið var framið. Þriðji maðurinn var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir hlutdeild í glæpnum.
Allir þrír áfrýjuðu. Áfrýjunardómstóllinn í París staðfesti sakfellingarnar 9. september síðastliðinn en mildaði refsingar þeirra allra.
Ekkert hefur komið fram um að DNA gögn málsins hafi verið dregin í efa eða að sakfellingarnar hafi með öðrum hætti verið byggðar á veikari grunni en áður. Engin opinber skýring hefur heldur verið gefin á því hvers vegna refsingarnar voru styttar.
„Ég var eins og tuskudúkka“
Milly hafði farið með hópi sem hún taldi vera vini sína til Parísar. Undir lok ferðarinnar var hún skilin ein eftir að næturlagi.
Maður gaf sig að henni og leiddi hana inn í dimma hjóla- og sorpgeymslu þar sem hópur um átta manna og drengja beið hennar. Hún var slegin, hrækt á hana, kölluð ógeðslegum nöfnum og hrint í gólfið.
Samkvæmt frásögn Milly neyddu þrír úr hópnum hana til munnmaka og nauðguðu henni án smokks. Fjórði maðurinn setti skammbyssu að höfði hennar, hótaði henni og fjölskyldu hennar og nauðgaði henni síðan.
Hinir fylgdust með, hlógu og móðguðu hana. Milly fékk þungt högg aftan á höfuðið og missti meðvitund.
„Ég var eins og tuskudúkka,“ sagði hún síðar þegar hún lýsti árásinni.
Móðirin varðveitti sönnunargögnin
Milly gat sent bróður sínum skilaboð klukkan 2.45 um nóttina og beðið hann um að kalla á lögreglu.
Vegna áfallsins og hótana árásarmannanna treysti hún sér ekki til að kæra fyrr en 23. apríl 2021, rúmu ári eftir árásina.
Móðir hennar hafði hins vegar varðveitt nærföt og buxur sem Milly klæddist um nóttina. Á fötunum fundust sextán sæðisblettir og fjögur mismunandi DNA auðkenni sem hjálpuðu lögreglu að bera kennsl á grunaða menn.
Milly hefur verið með alvarlega áfallastreituröskun og varanleg líkamlega og andlega kvilla eftir árásina. Hún hefur glímt við sjálfsskaða og gert tilraunir til að svipta sig lífi.
Þrír bíða enn dóms
Málinu er ekki lokið þrátt fyrir niðurstöðu áfrýjunardómstólsins.
Tveir aðrir menn, sem voru sextán ára þegar nauðgunin var framin, eiga að koma fyrir ungmennadómstól í desember vegna nauðgunarinnar. Fullorðinn maður verður þá einnig sóttur til saka fyrir líflátshótanirnar.
Lögmenn Milly og fjölskyldu hennar segja niðurstöðu áfrýjunarinnar áfall en hyggjast fara með málið lengra.