Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri Reykjavíkur og ritstjóri Morgunblaðsins, lést á heimili sínu í gær, 78 ára að aldri. Morgunblaðið greindi fyrst frá andlátinu.
Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir og Oddur Ólafsson læknir.
Áratugalangur ferill í opinberu lífi
Davíð var meðal áhrifamestu stjórnmálamanna landsins um langt skeið. Hann var kjörinn í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1974 og sat þar í tvo áratugi, til ársins 1994. Hann gegndi embætti borgarstjóra frá 1982 til 1991.
Árið 1991 var hann kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og sama ár náði hann kjöri á Alþingi. Hann tók við embætti forsætisráðherra það ár og sat í því embætti til 2004. Að því loknu varð hann utanríkisráðherra og gegndi því starfi frá 2004 til 2005.
Seðlabankastjóri og ritstjórn
Eftir að hann lét af ráðherrastörfum og formennsku í Sjálfstæðisflokknum árið 2005 tók hann við embætti seðlabankastjóra. Þar starfaði hann til ársins 2009.
Síðar sama ár hóf hann störf sem ritstjóri Morgunblaðsins og gegndi því starfi allt til dánardags.