Dönsk þingkona segir danska sjónvarpsstöð hafa klippt út konur með slæður sem sátu og hlógu meðan aðrir stóðu og vottuðu myrtum fjölskylduföður virðingu sína

Danska þingkonan Nadja Natalie Isaksen sakar dönsku sjónvarpsstöðina TV2 um að hafa breytt upptöku af minningarstund fyrir sænska lögreglumanninn Christian Zedig með því að fjarlægja hluta sem sýndi nokkrar konur með hijab sitja áfram og hlæja á meðan mínútuþögn var haldin.

Isaksen greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún birtir myndskeiðin tvö hlið við hlið. Annað er úr beinni útsendingu TV2 en hitt er sú útgáfa sem síðar var birt á samfélagsmiðlum stöðvarinnar.

Auglýsing

Samkvæmt Isaksen var mínútuþögn haldin fyrir leik á föstudag til minningar um Zedig, sem lést af áverkum eftir árás á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn fyrr í vikunni.

Segir auglýsingar hafa komið strax eftir umdeilt atriði

Í færslu sinni segir Isaksen að í beinni útsendingu hafi verið skipt yfir í auglýsingar eftir um það bil 30 sekúndur, rétt eftir að myndavélin hafi sýnt fjórar til fimm konur með hijab sem hún segir ekki hafa staðið upp á meðan mínútuþögnin fór fram en sáust svo flissa og brosa.

Hún bendir jafnframt á að þegar TV2 birti síðar upptöku af minningarstundinni á samfélagsmiðlum hafi einmitt þessi kafli verið klipptur út.

„Mér finnst það undarlegt,“ skrifar Isaksen og hvetur fólk til að bera saman upptökurnar tvær.

Minningarstund eftir manndráp

Christian Zedig var 32 ára gamall sænskur lögreglumaður og tveggja barna faðir. Hann var í Kaupmannahöfn til að fylgjast með heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu þegar hann var drepinn.

Nýjar upplýsingar um dauða Christian Zedig: Heilablæðing, brot á hálshrygg og vitni lýsa hrottalegum lokamínútum

Samkvæmt dönskum og sænskum fjölmiðlum reyndi Zedig að stilla til friðar þegar slagsmál brutust út meðal gesta við Íslandsbryggju. Hann varð sjálfur fyrir höggi sem varð til þess að hann féll í jörðina og hlaut alvarlega höfuðáverka. Hann lést síðar af völdum heilablæðingar.

Maður sem gaf sig síðar fram við lögreglu hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. Samkvæmt dönskum miðlum hefur hann áður hlotið fangelsisdóm fyrir morðtilraun.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing