Bandaríski blaðamaðurinn Nikole Hannah-Jones viðurkennir að hafa brugðist dóttur sinni eftir að hafa meðvitað sent hana í skóla sem var lágt skrifaður, þar sem fátækt var mikil og námsárangur slakur.
Ákvörðunin var ekki tekin vegna skorts á öðrum úrræðum. Hannah-Jones og eiginmaður hennar höfðu bæði efni og tengsl til að velja betri skóla en töldu að nærvera fjölskyldunnar gæti hjálpað til við að draga úr ójöfnuði í skólanum og breyta kerfinu.
Tíu árum síðar segir dóttirin, Najya sem nú er orðin 16 ára gömul, að móðir hennar hafi sett önnur börn og pólitískar hugsjónir framar menntun hennar og hagsmunum.
„Stundum vildi ég óska þess að í stað þess að hugsa alltaf um önnur börn hefðir þú hugsað um mig,“ sagði hún við móður sína. „Ég fékk aldrei þá menntun sem ég vildi.“
Hannah-Jones, sem er einn helsti höfundur 1619 verkefnis New York Times, greinir frá málinu í pistli sem birtist í New York Times Magazine á sunnudag.
1619 er umdeilt verkefni New York Times frá árinu 2019, undir stjórn Nikole Hannah-Jones þar sem markmiðið var að endursegja sögu Bandaríkjanna með þrælahald og framlag svartra Bandaríkjamanna í forgrunni. Nafnið vísar til ársins 1619, þegar fyrstu þræluðu Afríkubúarnir komu til ensku nýlendunnar Virginíu.
Verkefnið hefur bæði hlotið verðlaun og sætt harðri gagnrýni sagnfræðinga, meðal annars fyrir fullyrðingar um tengsl þrælahalds við bandarísku byltinguna.
Vildi breyta kerfinu með eigin barni
Árið 2015 skráðu hjónin Najyu í forskóladeild P.S. 307 í Brooklyn. Nemendur skólans eru aðallega svört börn úr tekjulágum fjölskyldum og námsárangur þar var langt undir meðaltali borgarinnar.
Hannah-Jones segist hafa talið að fjölskyldan gæti nýtt peninga sína, tíma og áhrif til að bæta skólann fyrir alla nemendur. Foreldrafélög fátækra skóla söfnuðu oft aðeins nokkrum þúsundum dollara á ári en hjónin gátu eina og sér lagt fram hærri fjárhæðir en allt árlegt ráðstöfunarfé félagsins.
Hún taldi einnig að skólayfirvöld hlustuðu frekar á efnameiri og áhrifameiri foreldra en fátæka foreldra sem kölluðu eftir bættum úrræðum.
„Við töldum að með því að senda Najyu í skóla þar sem flestir nemendur voru svartir og úr tekjulágum fjölskyldum gætum við hjálpað til við að bæta hann fyrir öll börnin,“ skrifar hún.
Vonin var jafnframt sú að fleiri fjölskyldur í sambærilegri stöðu fylgdu fordæmi þeirra.
Hannah-Jones fjallaði fyrst opinberlega um ákvörðunina árið 2016. Hún viðurkenndi þá að hún hefði áhyggjur af áhrifunum á dóttur sína en taldi valið engu að síður siðferðilega rétt.
„Ég hafði áhyggjur, og hef enn, af því hvort ég hafi tekið rétta ákvörðun fyrir litlu stúlkuna okkar. En ég vissi að ég hafði tekið siðferðislega réttu ákvörðun,“ skrifaði hún.
Fyrstu árin virtist allt ganga vel. Najya kunni vel við skólann og foreldrar hennar töldu hana standa jafnfætis jafnöldrum sínum í lestri og stærðfræði.
Verkefnin höfðu aldrei verið yfirfarin
Þegar Najya var í fjórða bekk fékk Hannah-Jones loks möppu með stærðfræðiverkefnum hennar sem hún hafði ítrekað óskað eftir að sjá.
Ekkert þeirra hafði verið yfirfarið.
Hannah-Jones fór sjálf yfir verkefnin og komst að því að flest svörin voru röng. Najya taldi stærðfræði vera sitt besta fag og hélt að hún væri að leysa dæmin rétt þar sem kennarinn hafði aldrei leiðrétt hana.
Ritunarverkefni hennar voru sömuleiðis full af óleiðréttum villum í stafsetningu, greinarmerkjum og málfræði.
Hún segist hafa setið þögul við borðið og séð fyrir sér dóttur sína halda að hún væri að standa sig frábærlega þegar hún var í raun að dragast aftur úr.
„Sorgin breyttist í fljótt í mikla reiði,“ skrifar hún.
Hjónin mættu á skrifstofu skólastjórans eftir jólafrí og neituðu að fara fyrr en fundur fengist. Í kjölfarið var tekið upp kerfi til að meta stöðu nemenda og upplýsa foreldra um námsframvindu þeirra.
Þau réðu einnig einkakennara fyrir Najyu og fengu yfirmann skólaumdæmisins inn í málið. Þá var hálft skólaárið hins vegar þegar liðið.
Fékk góðar einkunnir án þess að ná tökum á efninu
Najya fór síðar í Urban Assembly Unison unglingaskólann. Þar fékk hún góðar einkunnir, tók afreksáfanga og taldi sig standa vel.
Skólinn hafði hins vegar hætt að leggja fyrir heimavinnu og lagði meiri áherslu á framfarir nemenda en hvort þeir hefðu náð tilskilinni hæfni. Einkunnir voru að hluta miðaðar við frammistöðu nemendahópsins í heild.
Skólastjórinn viðurkennir í frásögn Hannah-Jones að tilraunir til að mæta nemendum sem voru langt á eftir hafi haft alvarlegar afleiðingar.
„Við megum ekki lækka væntingar í nafni baráttunnar gegn kynþáttafordómum,“ sagði hún. „Því þá verða til kynþáttafordómar í dulargervi baráttu gegn kynþáttafordómum.“
Undir lok sjöunda bekkjar fóru Najya og vinkonur hennar að skoða eftirsótta framhaldsskóla og velta fyrir sér möguleikum sínum á inngöngu. Þær flettu eigin skóla upp á netinu og sáu þá hversu illa hann kom út í samanburði við aðra skóla borgarinnar.
Najya gekk á móður sína þegar hún sótti hana í skólann.
„Vissirðu að skólinn minn væri svona slæmur þegar þú ákvaðst að setja mig hingað?“ spurði hún.
Þegar móðir hennar útskýrði samfélagslegar ástæður ákvörðunarinnar varð stúlkan bálreið.
„Þannig að þú áttir peninga til að senda mig í einn besta skólann en valdir að gera það ekki?“ sagði hún. „Af því að önnur börn eru verr stödd vildirðu ekki setja mig í góðan skóla?“
Kunni hvorki brot né deilingu
Najya krafðist þess síðar að fá sjálf að velja framhaldsskólann sinn. Hún komst inn í skóla sem gerir mun meiri kröfur til nemenda sinna og þar komu afleiðingar fyrri skólagöngu fljótt í ljós.
Hún hafði fengið A í algebru í áttunda bekk en ekki staðist samræmt próf. Í nýja skólanum þurfti hún því að taka fagið aftur.
Eftir fyrsta prófið kom hún heim sannfærð um að hafa fengið A eða B. Nokkrum dögum síðar hljóp hún grátandi inn í herbergi sitt eftir að hafa fallið.
Þetta endurtók sig. Hún taldi sig kunna efnið, lagði mikið á sig og var síðan niðurbrotin þegar niðurstöðurnar komu.
„Ég lærði svo mikið. Mér finnst ég bara svo heimsk,“ sagði hún við móður sína.
Námsmat hjá einkakennslustofu leiddi í ljós að Najya kunni lítið í algebru og skorti grunnþekkingu sem hún hefði átt að tileinka sér í barnaskóla, meðal annars í almennum brotum og deilingu.
Hún hafði heldur aldrei lært að skipuleggja heimanám eða vinna sjálfstætt. Sjálfstraust hennar hrundi og hún þróaði með sér mikinn prófkvíða.
Með einkakennslu og aðstoð kennara tókst henni þó að vinna upp stóran hluta forskotsins sem aðrir nemendur höfðu. Í lok fyrstu annarinnar var hún með nær eingöngu A og B.
„Ég valdi hana ekki“
Þegar Hannah-Jones vann að nýju greininni fór hún yfir margra ára samskipti við skólastjórnendur og kennara. Hún segist þá hafa horfst í augu við sannleika sem hún gæti ekki lengur bælt niður.
„Najya átti betra skilið. Þau áttu það öll. En hún var mín,“ skrifar hún.
Dóttir hennar hafi treyst því að móðir hennar verndaði hana og tryggði henni það sem hún þyrfti til að blómstra.
„Og ég valdi hana ekki.“
Hannah-Jones bað dóttur sína afsökunar en Najya svaraði að hún hefði óskað þess að móðir hennar hefði oftar hugsað um hana í stað þess að setja önnur börn í fyrsta sæti.
„Ég viðurkenni fyrir þér að ég gerði ekki mitt besta fyrir þig og mér þykir það innilega leitt,“ sagði Hannah-Jones.
Hún segist ekki vita hvort ákvörðunin hafi skilað þeim samfélagslegu breytingum sem hún vonaðist eftir.
„Þegar kemur að ákvörðunum okkar hjóna um opinbera menntun finnst mér þessa dagana að ég hafi brugðist bæði mínum gildum og barninu mínu,“ skrifar hún.
Í svari sínu til Fox News sagði Hannah-Jones að reiði vegna ákvörðunar hennar ætti einnig að beinast að stöðu þeirra þúsunda svartra barna sem ættu foreldra sem hefðu ekki efni á að kaupa einkakennslu eða velja betri skóla.
Corey DeAngelis, talsmaður aukins skólavals í Bandaríkjunum, sagði hins vegar að foreldrum bæri skylda til að setja eigin börn í fyrsta sæti.
„Það er rangt að nota þau sem verkfæri í aktívisma í stað þess að berjast fyrir hagsmunum þeirra,“ sagði hann.