Ef rússíbanar hræða þig gæti það bjargað lífi þínu – Lést eftir ferð í nýjum rússíbana

Kevin Rodriguez Zavala, 32 ára gamall maður frá Kissimmee í Flórída, lést í vikunni eftir ferð í rússíbananum Stardust Racers í nýjum skemmtigarði Universal, Epic Universe, í Orlando.

Samkvæmt upplýsingum frá NBC News missti Zavala meðvitund meðan á ferð stóð.

Auglýsing

Öryggisstarfsmenn garðsins og lögreglumenn brugðust strax við og fluttu hann á sjúkrahús, þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Vitni á staðnum lýstu því að Zavala hafi verið blóðugur og slappur, með augljós brot á fæti.

Fyrst var talið að hann hefði fallið úr tækinu, en réttarmeinafræðingur Orange-sýslu staðfesti síðar að hann hefði hlotið ótal högg og mikla áverka án þess að hafa fallið úr sætinu.

Áður greint frá minniháttar atvikum í sama tæki

Stardust Racers er nýjasti og hraðskreiðasti rússíbaninn í Epic Universe sem nær allt að 100 km hraða og fer í gegnum þrönga snúninga og sem valda miklu álagi (G-force).

Í júní greindu tveir farþegar, annar 63 ára, hinn 43 ára, frá dofa og áverka eftir ferð í tækinu.

Fyrsta dauðsfallið í Epic Universe

Þetta er fyrsta dauðsfallið í Epic Universe, sem opnaði fyrr á þessu ári og kostaði um sjö milljarða dollara í byggingu.

Skemmtigarðurinn samanstendur af fimm þemasvæðum, þar á meðal Celestial Park þar sem Stardust Racers er staðsettur.

Tækinu hefur verið lokað á meðan rannsókn fer fram.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing