Nútíminn mun héðan í frá birta regluleg myndbönd í samstarfi við Aðalheiði Jensen, þar sem hún veltir upp spurningum um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt.
Í þessu fyrsta myndbandi veltir hún því fyrir sér af hverju við sýnum oft aðeins okkar bestu hlið í upphafi sambands – er það vegna ótta við höfnun?
„Ef þú getur ekki verið þú frá byrjun, er þetta þá samband sem þú vilt vera í?“
Aðalheiður er eigandi Tilveran Barre og yoga stúdíó á Garðatorgi 3. Hennar líf og yndi er að styðja við fólk sem vill auka lífsgæði sín í gegnum hreyfingu, heilsu- og lífsráðgjöf.
Fylgstu með Nútímanum til að sjá ný myndbönd frá Aðalheiði reglulega.
View this post on Instagram