Eftirlitsmálum sem Tryggingastofnun opnaði vegna gruns um bótasvik, ofgreiðslur bóta eða annars konar frávik fækkaði um 74 prósent á árunum 2010 til 2025. Á sama tíma fjölgaði þeim sem fengu örorku-, endurhæfingar- eða ellilífeyrisgreiðslur frá stofnuninni um 59 prósent.
Þetta leiðir samanburður Nútímans á tveimur nýlegum svörum félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurnum Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins, í ljós.
Árið 2010 opnaði Tryggingastofnun 528 eftirlitsmál. Árið 2025 voru þau aðeins 137, þrátt fyrir að samanlagður fjöldi þeirra sem fengu örorku-, endurhæfingar- eða ellilífeyrisgreiðslur hefði aukist úr 47.636 í 75.948.
Sexfalt færri mál miðað við fjölda lífeyrisþega
Árið 2010 jafngilti fjöldi eftirlitsmála 1,11 prósenti af samanlögðum fjölda lífeyrisþega í þessum flokkum. Það svarar til eins eftirlitsmáls á hverja 90 greiðsluþega.
Árið 2025 var hlutfallið komið niður í 0,18 prósent, eða eitt eftirlitsmál á hverja 554 greiðsluþega.
Eftirlitsmál voru því rúmlega sexfalt fleiri miðað við fjölda lífeyrisþega árið 2010 en árið 2025. Hlutfallsleg fækkun eftirlitsmála nemur tæplega 84 prósentum þegar tekið er tillit til fjölgunar greiðsluþega.

Fjöldi eftirlitsmála náði hámarki árið 2013, þegar Tryggingastofnun opnaði 626 slík mál. Árið 2021 voru þau aðeins 35 og höfðu þá fækkað um rúmlega 94 prósent frá hámarkinu.
Málunum hefur fjölgað aftur á síðustu tveimur árum, úr 51 árið 2023 í 112 árið 2024 og 137 árið 2025. Þau eru engu að síður enn langt undir því sem tíðkaðist á fyrri hluta tímabilsins.
Að meðaltali 490 mál á ári fyrir 2020
Á árunum 2010 til 2019 opnaði Tryggingastofnun að meðaltali 490 eftirlitsmál á ári. Frá 2020 til 2025 voru þau að meðaltali aðeins 83 á ári.
Í svari ráðherra um eftirlit með lífeyrisgreiðslum kemur ekki fram hvað skýrir þessa miklu fækkun. Þar er heldur ekki tekið fram hvort breyting hafi orðið á skráningu málanna, verklagi Tryggingastofnunar eða því hvernig eftirliti stofnunarinnar er háttað.
Þrjár konur fengu yfir 60 milljónir án þess að hafa starfað á Íslandi
Eftirlitsmálin ná ekki eingöngu til gruns um refsiverð bótasvik. Samkvæmt svarinu eru einnig talin með mál vegna gruns um ofgreiðslur bóta og „annars konar frávik“. Fjöldi opnaðra mála segir því ekki til um hversu mörg bótasvik voru staðfest.
Nær helmingur málanna vegna fólks af erlendum uppruna
Samhliða mikilli fækkun eftirlitsmála hefur samsetning þeirra breyst verulega.
Af 137 málum sem Tryggingastofnun opnaði árið 2025 vörðuðu 65 fólk af erlendum uppruna, eða 47,4 prósent. Árið áður voru slík mál 30 talsins og fjölgaði þeim því um 117 prósent á einu ári.
Málum sem vörðuðu fólk með íslenskan uppruna fækkaði á sama tíma úr 82 í 72.
Í svarinu kemur jafnframt fram að Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að fylgjast með því hvort lífeyrisgreiðslur til fólks af erlendum uppruna séu reglulega fluttar úr landi. Þegar lífeyrir hafi verið greiddur teljist hann eign viðkomandi, sem hafi fullan ráðstöfunarrétt yfir fjármununum.
Ráðuneytinu er samkvæmt svarinu ekki kunnugt um hvort stjórnvöld annars staðar á Norðurlöndum hafi heimildir til slíks eftirlits.
Fjöldatölur ná til greiðslna upp á eina krónu eða meira
Upplýsingar um þróun í fjölda lífeyrisþega koma fram í öðru svari ráðherra við fyrirspurn Nönnu Margrétar. Þar er talinn árlegur fjöldi þeirra sem fengu annars vegar örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og hins vegar ellilífeyri að fjárhæð ein króna eða meira.
Við samanburðinn er samanlagður fjöldi greiðsluþega í þessum tveimur meginflokkum notaður sem mælikvarði á umfang lífeyriskerfisins. Hafa ber í huga að einstaklingur sem færist milli bótaflokka innan sama árs kann að koma fyrir í báðum flokkum.
Gögn stjórnvalda sýna engu að síður ótvíræða þróun: Lífeyrisþegum hefur fjölgað verulega frá árinu 2010 en fjöldi eftirlitsmála er aðeins um fjórðungur þess sem hann var þá.