„Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“

Ingibjörg Einarsdóttir hefur sett af stað söfnun fyrir Maríu vinkonu sína, sem missti unglingsdóttur sína í hörmulegu bílslysi í Suður-Afríku í liðinni viku.

Söfnunin hefur fengið góðar viðtökur og segir Ingibjörg harminn ólýsanlegan.

Auglýsing

Greint var frá því um helgina að Íslendingarnir sem létust í umferðarslysi í Suður-Afríku í síðustu viku hefðu verið á leið í heimsókn til íslensks drengs sem er í fíknimeðferð þar í landi.

Fólksbíl þeirra lenti saman við flutningabíl með þeim afleiðingum að systir drengsins og föðuramma létust í slysinu.

Faðir hans liggur þung haldinn á sjúkrahúsi.

María verið hennar klettur

María Ericsdóttir, móðir barnanna, hélt út til Suður-Afríku á föstudag.

Daginn eftir setti Ingibjörg, sem einnig á son í meðferð þar ytra, af stað söfnun til að styðja Maríu.

Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á reikninginn: Rknr. 2200-26-095108, Kt. 241178-4049.

„Bara til þess að reyna að létta undir með Maríu minni eins mikið og ég get. Hún hefur staðið með mér í mínu eins og klettur og hjálpað mér að leita að mínum dreng þegar hún stóð í sömu sporum með sinn,“ segir Ingibjörg.

Hún segir söfnunina ætlaða til að tryggja áframhaldandi meðferð fyrir drenginn og standa straum af því að koma stúlkunni heim.

„Þetta lagar auðvitað ekkert. Þetta minnkar ekki sársaukann, en þetta getur líklega létt lífið. Mig langar að hvetja alla til að taka saman höndum og styðja við hana.“

Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta lagt inn á reikninginn: Rknr. 2200-26-095108, Kt. 241178-4049.

Þyngra en tárum taki

Viðbrögð við söfnuninni hafa verið mikil og hefur Facebook færslu um hana verið deilt yfir þúsund sinnum.

„Ég hef bara aldrei upplifað annan eins harm á ævinni og er maður nú búinn að ganga í gegnum ýmislegt. Þetta hefur verið ólýsanlegt,“ segir Ingibjörg.

Hún segir slysið hafa verið gríðarlegt áfall, ekki síst í ljósi þess að fjölskyldan var á leið til að heimsækja son sinn og bróður með jóla- og afmælisgjafir í bílnum.

„Þetta er þyngra en tárum taki. Þetta hefur verið mikið áfall fyrir drengina alla,“ segir Ingibjörg og bætir við að hún sé þakklát fyrir að þeir séu í meðferð í Suður-Afríku.

„Þeir eru í öruggum höndum og í höndum fagfólks, til allrar hamingju. Ég er fegin að þeir séu þar úti en ekki hér heima að ganga í gegnum þetta áfall.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing