Eigandi sagður hafa flúið brunann í Sviss með sjóðsvél í höndunum – yfirvöld kanna hvort sönnunargögnum hafi verið eytt

Svissneskir saksóknarar hafa handtekið eigendur skemmtistaðarins Le Constellation í Crans-Montana íeftir mannskæðan bruna sem kostaði 40 manns lífið og skildi yfir 100 eftir slasaða, marga alvarlega. Flest fórnarlambanna voru ungmenni sem fögnuðu áramótunum þegar eldurinn braust út í kjallara staðarins aðfaranótt 1. janúar.

Eigendur staðarins, Frakkarnir Jacques og Jessica Moretti, eru til rannsóknar vegna gruns um manndráp af gáleysi og alvarlegan líkamskaða af gáleysi. Samkvæmt nýjustu upplýsingum beinist rannsóknin nú einnig að grun um að sönnunargögn hafi verið eyðilögð í kjölfar brunans.

Töldu hættu á að eigandinn myndi flýja land

Auglýsing

Jacques Moretti, 49 ára, var handtekinn eftir að saksóknarar töldu hættu á að hann reyndi að flýja land. Eiginkona hans, Jessica Moretti, 40 ára, hefur verið látin bera rafrænt ökklaband og þarf að mæta reglulega til lögreglu.

Hjónin hafa lýst því yfir í yfirlýsingu að þau séu harmi slegin vegna atburðanna, segist hugsa til fórnarlamba og hafi heitið fullri samvinnu við yfirvöld.

Myndbandsupptökur og ásakanir um flótta með sjóðsvél

Alvarlegar ásakanir hafa komið fram í erlendum fjölmiðlum um að Jessica Moretti hafi verið tekin upp á eftirlitsmyndavélum þar sem hún flýr brennandi skemmtistaðinn með sjóðsvél í höndunum á meðan fjöldi gesta var enn fastur inni.

Vitni hafa borið að hún hafi yfirgefið staðinn þegar eldurinn var þegar farinn að breiðast hratt út. Ef þessar upplýsingar reynast réttar gæti hún einnig sætt rannsókn fyrir að hafa ekki veitt fólki í lífshættu aðstoð.

Kerti og blóm hafa verið lögð í Crans-Montana til minningar um þau 40 sem létust í mannskæðum bruna á skemmtistaðnum Le Constellation um áramótin.

Grunur um eyðingu sönnunargagna eftir brunann

Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni fórnarlamba beinist rannsókn nú einnig að því hvort eigendur skemmtistaðarins hafi reynt að torvelda rannsókn málsins með því að fjarlægja eða gera óaðgengileg sönnunargögn.

Þar er sérstaklega vísað til þess að samfélagsmiðlareikningar skemmtistaðarins voru lokaðir eða gerðir óvirkir aðeins klukkustundum eftir brunann, á meðan björgunaraðgerðir stóðu enn yfir. Þá var vefsíða staðarins einnig tekin niður.

Að sögn lögmanns innihéldu þessir reikningar myndskeið og efni frá áramótapartýinu, þar sem sjá mátti fjölda gesta inni á staðnum, notkun neistasprengja og aðstæður rétt fyrir brunann. Hann segir slíkar aðgerðir vekja spurningar um hvort öryggismál hafi orðið eigendum hugleikin strax í kjölfar brunans.

Eldfimt einangrunarefni og flöskublys

Rannsókn yfirvalda beinist meðal annars að því hvort eldurinn hafi kviknað þegar blys, sem festar voru á kampavínsflöskur, snertu eldfimt hljóðeinangrunarefni í lofti kjallarans. Slíkar sýningar höfðu verið hluti af starfsemi staðarins um árabil.

Fyrrverandi starfsmenn hafa lýst í viðtölum að þeir hafi ítrekað haft áhyggjur af öryggi, að neyðarútgangar hafi stundum verið læstir og að slökkvitæki hafi verið geymd í læstum rýmum.

Ekkert brunaeftirlit í sex ár

Í ljós hefur komið að ekkert brunaeftirlit hafði farið fram á staðnum í sex ár, þrátt fyrir að hann teldist áhættusamur. Yfirvöld í Crans-Montana hafa viðurkennt að eftirlitið hafi brugðist og að reglubundið brunaeftirlit hefði átt að fara fram árlega.

Gestir og starfsfólk sjást halda á kampavínsflöskum með sérstökum flöskublysum inni á Le Constellation skömmu áður en eldur braust út á skemmtistaðnum aðfaranótt nýárs.

Dularfull fjármál og fyrri sakfellingar

Lögmenn aðstandenda fórnarlamba hafa jafnframt vakið athygli á fjármálum Moretti-hjónanna. Þau byggðu upp umfangsmikla starfsemi í einum dýrasta skíðabæ Sviss og keyptu fasteignir fyrir háar fjárhæðir án þess að taka lán.

Jacques Moretti hefur áður hlotið dóma í Frakklandi, meðal annars fyrir fjársvik og alvarleg brot tengd skipulagðri brotastarfsemi, samkvæmt erlendum fjölmiðlum.

Rannsókn heldur áfram

Svissnesk yfirvöld rannsaka nú hvort rekstur skemmtistaðarins hafi verið í samræmi við leyfi, hvort alvarleg vanræksla hafi átt sér stað, hvort sönnunargögnum hafi verið spillt viljandi, og hver beri endanlega ábyrgð á einum mannskæðasta bruna á skemmtistað í Evrópu á síðari árum.

Fjölskyldur fórnarlamba krefjast skýrra svara — og ábyrgðar.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing