Eigendum og stjórnendum WNBA tókst ekki að komast að því hvað kona er eftir löng fundarhöld

Starfshópi kvennadeildar NBA (WNBA), sem skipaður er forsetum og framkvæmdastjórum liða deildarinnar, tókst ekki að komast að niðurstöðu um hverjir eigi að teljast gjaldgengir til að keppa í kvennadeildinni eftir fundahöld á miðvikudag, en aðeins konur mega keppa í deildinni.

Á fundinum var sérstaklega rætt um þátttöku trans kvenna í WNBA en engar reglur um gjaldgengi voru samþykktar. Deildin segist ætla að halda umræðunni áfram á næstu vikum og mánuðum.

Auglýsing

Málið hefur komist í kastljósið eftir harðar deilur um þátttöku trans kvenna í kvennaíþróttum í Bandaríkjunum.

Reglurnar segja aðeins að leikmenn verði að vera konur

Í nýjum kjarasamningi WNBA, sem undirritaður var í mars, segir einfaldlega að „aðeins leikmenn sem eru konur“ hafi rétt til að spila í deildinni.

Hins vegar er hvergi skilgreint í samningnum hvað átt sé við með orðinu kona.

WNBA hefur heldur enga opinbera stefnu um þátttöku trans eða intersex leikmanna og hefur ekki svarað beiðnum ESPN um að skýra hvort trans konur, trans karlar eða kynsegin einstaklingar geti leikið í deildinni.

Engin þekkt trans kona hefur hingað til leikið í WNBA. Tveir kynsegin leikmenn, Layshia Clarendon og AD Durr, hafa hins vegar leikið í deildinni. Báðir fæddust kvenkyns.

Fyrrverandi NBA leikmenn lýstu sig konur

Umræðan tók óvænta stefnu á föstudag þegar fyrrverandi NBA leikmennirnir Enes Kanter Freedom og Royce White lýstu því yfir að þeir skilgreindu sig sem konur og væru þar með gjaldgengir í nýliðaval WNBA.

Tröllvaxinn fyrrverandi NBA leikmaður ætlar í kvennakörfuboltann – Segist „stundum“ vera kona

Yfirlýsing þeirra virðist hafa verið í þeim tilgangi að vekja athygli á þeirri óvissu sem hefur skapast vegna reglna deildarinnar um að aðeins konur megi keppa án þess að skilgreina nánar hvað felist í því skilyrði.

Málið hefur einnig valdið mótmælum við leiki Indiana Fever eftir að leikmaður liðsins, Sophie Cunningham, lýsti yfir stuðningi við að trans stúlkur og konur yrðu ekki leyfðar í íþróttum stúlkna og kvenna.

Engin niðurstaða eftir fundinn

WNBA sagði í yfirlýsingu eftir fundinn að rætt hefði verið um fjölmörg mál, þar á meðal trans leikmenn.

Deildin sagðist ætla að ræða málið áfram við hagsmunaaðila en tók jafnframt fram að ekkert brýnt mál um gjaldgengi leikmanna væri nú til úrlausnar.

Það verður spennandi að fylgjast með því hvort kvennadeild NBA körfuboltan muni einhvern tímann komast að því hvað kona er.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing