Eiginkona forsætisráðherra Spánar, Begoña Gómez, hefur verið ákærð fyrir brot tengd spillingu eftir að rannsók á málum hennar hafa staðið yfir í í tvö ár. Hún er meðal annars sögð hafa gerst sek um fjárdrátt, nýtt áhrif sín gegn greiðslu, spillingu í viðskiptum og misnotkun opinberra fjármuna.
Samkvæmt úrskurðinum snýst málið aðallega um hvort Gómez hafi nýtt tengsl sín við forsætisráðherrann, Pedro Sánchez, til að tryggja sér aukinn frama og stöðu innan háskólasamfélagsins.
Grunuð um að misnota stöðu sína og opinbera fjármuni
Gómez er sögð hafa nýtt stöðu sína og áhrif manns síns til að tryggja sér starf við Complutense University of Madrid þar sem hún stýrði meistaranámi í viðskiptafræði. Þá er hún einnig sögð hafa nýtt opinbertfjármagn og umsvif sín í þágu einkahagsmuna.
Dómstóllinn telur að skortur á formlegum hæfniskröfum geti bent til þess að hún hafi ekki fengið starf sitt á eðlilegan hátt.
Neitar sök og segir málið pólitískt
Gómez hefur neitað öllum ásökunum. Forsætisráðherrann hefur jafnframt vísað málinu á bug og sagt það vera hluta af pólitískri atlögu hægri og öfgahægri afla gegn ríkisstjórn hans.
Rannsóknin hófst í apríl 2024 að frumkvæði dómara, eftir kæru frá samtökunum Manos Limpias, sem hafa áður lagt fram fjölda kæra gegn stjórnmálamönnum.
Forsætisráðherra tók sér hlé vegna málsins
Þegar rannsóknin hófst ákvað Sánchez að stíga tímabundið til hliðar frá opinberum störfum í fimm daga til að íhuga stöðu sína. Hann gagnrýndi þá það sem hann sagði vera skipulagða herferð gegn sér og eiginkonu sinni.
Fleiri tengd mál innan stjórnkerfisins
Á sama tíma hafa fleiri einstaklingar tengdir forsætisráðherranum sætt rannsókn. Bróðir hans, David Sánchez, hefur verið ákærður í máli sem tengist því einnig að nýta opinber áhrif sín til að fá ráðningu í opinbert starf.
Þá hefjast réttarhöld yfir fyrrverandi samgönguráðherra ríkisstjóran Sanchez, José Luis Ábalos, vegna ásakana um mútur í tengslum við sölu á hlífðarbúnaði til spænska ríkisins á tíma Covid faraldursins.