Ágústa Kolbrún, sem hefur búið bæði á Ítalíu og í New York, rifjar upp tímabil í lífi sínu sem hún lýsir sem sársaukafullu en lærdómsríku.
Hún eignaðist og rak kynlífstækjaverslun í miðbæ Reykjavíkur aðeins 21 árs gömul, eftir að hafa orðið ástfangin af manni sem síðar fór í gjaldþrot vegna fíknar.
Tók við fyrirtækinu eftir gjaldþrot
„Ég varð ástfangin af alkóhólista og fíkli, þetta er eitthvað sem ég þekki alveg,“ segir Ágústa í þættinum.
„Hann átti Erotica Shop á Hverfisgötunni, en þegar hann fór í gjaldþrot færði hann fyrirtækið yfir á mig. Ég var bara 21 árs og fannst þetta ekkert mál.“
„Ég hugsaði bara: ef þið vissuð á hvað ég kaupi þetta og sel þetta svo, þá mynduð þið líka gera þetta!“
Þegar sambandið endaði kom í ljós að Ágústa hafði orðið ábyrg fyrir skuldbindingum verslunarinnar.
„Sýslumaður hringdi í mig og sagði: ‘Þú ert í skuld hér.’ Þá fattaði ég að ég væri orðin ábyrgðaraðili og ákvað að taka þetta bara yfir,“ segir hún.
„Þetta varð eins og viðskiptaskóli“
Ágústa tók sig til og rak verslunina áfram, þrátt fyrir erfiðan aðdraganda.
„Hann hafði rústað öllu, en ég hreinsaði til og lærði ótrúlega mikið. Þetta varð eiginlega minn viðskiptaskóli. Ég fór í þetta vegna ástar, ekki metnaðar, en þetta kenndi mér allt sem ég veit í dag um rekstur.“
Erotica Shop, sem var ein af fyrstu verslunum sinnar tegundar á Íslandi, vakti mikla athygli á sínum tíma.
„Fólk spurði mig oft af hverju svona ung stelpa væri með svona búð,“ segir hún og hlær.
„Ég hugsaði bara: ef þið vissuð á hvað ég kaupi þetta og sel þetta svo, þá mynduð þið líka gera þetta!“
Klippti á gamla kafla
Verslunin gekk vel í nokkur ár, en Ágústa ákvað síðar að selja hana.
„Ég varð ólétt og langaði bara að klippa á þennan kafla, hann tengdist mikilli neyslu og meðvirkni. Ég vildi byrja nýtt líf og hætta að selja hjálpartæki. Það var svona æði, en ég var aldrei stolt af því,“ segir hún.
Ágústa Kolbrún er í dag þekkt fyrir list sína og störf sem jógakennari.
Hún segir þessa reynslu hafa mótað sig bæði sem einstakling og skapandi manneskju.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.