Eini hópur fólks sem er samfélagslega samþykkt að útrýma kerfisbundið – Hvað segir það okkur?

Tvær nýlegar greinar um fósturskimanir og Down heilkenni urðu kveikjan að þessum skrifum. Ég tek heilshugar undir þær báðar og finnst mikilvægt að þessi umræða haldi áfram.

Algjörlega frábær skrif, og miklu dannaðri en ég myndi sjálfur skrifa.

Auglýsing

Í ljósi þessarar nýju umræðu þá finnst mér rétt að ítreka að ég virka kannski grimmur í þessari umræðu og ég bæði veit af því og ætla ekkert að hætta því.

Ég ítreka enn og aftur: ÞAÐ ER MJÖG MIKILVÆGT AÐ HALDA ÞESSARI UMRÆÐU AÐSKILDRI FRÁ FÓSTUREYÐINGUM ALMENNT! Enda er það allt önnur umræða í grunninn.

Stórhættulegt viðhorf

Það er búið að normalísera það viðhorf hér á landi að ekkert sé athugavert við að fara í fóstureyðingu ef í ljós kemur að barn er með Downs heilkenni.

Hvað meina ég með því? Ég meina það að það þykir ekki samfélagslega samþykkt að tala svona um neinn annan hóp af fólki, að ýja að því að það sé ekkert athugavert við að láta eyða barni sem þú ætlaðir að eiga fyrir það eitt að tilheyra þessum hópi fólks.

Ég er ekki að tala um tilfelli þar sem alvarlegir líffæragallar hafa greinst, barni er ekki hugað líf eða fyrirséð er að það muni þjást gífurlega.

Ég er að tala um Down heilkenni eitt og sér. Það er hægt að rannsaka alvarlega líffæragalla sérstaklega og greining á Downs-heilkenni þýðir ekki sjálfkrafa að slíkir gallar séu til staðar.

Það er hægt að skima fyrir þessu öllu án þess að Down heilkenni komi þar við sögu.

Manneskjan sem kallar mig dómharðan fyrir að bregðast af hörku við þessum fordómum myndi tryllast ef einhver myndi gefa í skyn að við megum ekki dæma þá sem myndu eyða barni sem vitað væri að yrði hinsegin, svo ég taki dæmi. Þá væru forsendur ákvörðunarinnar skyndilega orðnar umdeildar siðferðilegt álitamál. (Ég geri mér vel grein fyrir að við skimum ekki fyrir samkynhnegið eða hinseginleika, en siðferðislegi punkturinn breytist ekkert við það).

En þegar við ræðum hóp sem á í alvöru baráttu við alvöru tilverurétt, þegar kemur að hópi þar sem sjálf greiningin getur orðið ástæða þess að annars velkomið barn fær ekki að fæðast, þá þegir sama fólk og finnst orð vera ofbeldi.

Ég er ekki að eltast við að banna eitt eða neitt, heldur að breyta þeirri viðbjóðslegu normalíseringu að fólk með Downs eigi siðferðilega minni rétt til lífs en aðrir.

Jón Þormar Pálsson

Höfundur er fimm barna faðir og nöldrari.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing