Einn vinsælasti „ferða“ YouTuber heims eyddi mánuði á Íslandi – Hér geturðu séð hvað honum fannst um landið

Bandaríski „ferðavloggarinn“ Trent Arant, betur þekktur sem Trent the Traveller, eyddi nýverið heilum mánuði á ferðalagi í húsbíl um Ísland.

Trent er einn vinsælasta „ferða-Youtuber“ heims, en þeir flakka um heiminn og taka upp ferðalög sín, en Trent er með rúmlega 1,2 milljónir fylgjenda á Youtube.

Auglýsing

Nú hefur hann birt heila seriú myndbanda þar sem hægt er að fylgjast er meðferðalagi hans um allt landið.

Í nýjasta þættinum lýsir hann Íslandi sem einstökum stað og segir að landið komi sér á óvart á hverjum degi.

Hápunkturinn að hans mati er kvöld þar sem hann og vinur hans borða kvöldmat inni í helli á tjaldsvæðinu í Þakgili og „gleypa í sig steik eins og víkingar“.

Mánuður í húsbíl um Ísland

Í upphafi þáttarins kynnir Trent sig sem mann sem býr og ferðast um Ísland í húsbíl í heilan mánuð.

Þátturinn er hluti af heilli seríu þar sem áhorfendur fylgja honum dag frá degi um landið á einum vinsælasta ferðamannatímum ársins.

Hann hvetur áhorfendur til að horfa á fyrstu þættina til að ná utan um „öll brjáluðu ævintýrin“ þar sem mánuðurinn hér á landi verður sífellt ævintýralegri eftir því sem líður á.

Vestmannaeyjar, lundar og eldfjall

Í þessum nýjasta þætti hefst dagurinn í Vík á suðurströndinni en Trent og ferðafélagi hans Jason halda þaðan með ferjunni út í Vestmannaeyjar.

Þar skoða þeir bæinn og rifja upp sögu eldgossins sem lagði stóran hluta bæjarins í rúst árið 1973.

Trent lýsir því hve sérstakt séu að vera á eyju sem hann kallar heimkynni stærstu lundabyggðar í heimi og talar um það sem eitt mögnuðasta fuglaævintýri ferðarinnar.

Norðurljós og kveðjustund við húsbílinn

Síðar um kvöldið fá þeir tilkynningu í síma um að líkur séu á norðurljósum.

Trent heldur út í myrkrið og segir að augnablikið þegar grænar daufar slæður birtast yfir dalnum sé magnaðasta sem hann hef nokkurn tíma upplifað.

Þátturinn endar á því að hann kveður húsbílinn eftir margar vikur á ferð um Ísland og undirbýr sig fyrir skipulagða hópferð um landið með áhorfendum, sem verður næsti kafli í íslenska ævintýrinu hans.

Hægt er að sjá nýjasta þátt Trent hér fyrir neðan en ef þig langar að fylgjast með ferðalagi hans frá byrjun er hægt að smella hér.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing