Á Selfossi hefur á síðustu árum myndast fastur vettvangur fyrir karlmenn sem takast á við krabbamein. Annan hvern miðvikudag klukkan 17:30 hittist hópurinn að Eyravegi 31 þar sem menn koma saman, ræða stöðuna og styðja hver annan í gegnum krefjandi tíma. Starfið hófst í byrjun árs 2021 og hefur, að sögn þeirra sem taka þátt, skipt miklu máli.
Hópurinn nefnir sig Smárana og starfar innan veggja Krabbameinsfélags Árnessýslu. Um er að ræða stuðningshóp fyrir karla sem hafa greinst með krabbamein og vilja hitta aðra í svipaðri stöðu.
Erfitt að ræða veikindin
Högni Jóhann Sigurjónsson, sem hefur umsjón með hópnum, segir í viðtali við Sunnlenska.is að hugmyndin hafi orðið að veruleika eftir að spurt var hvort sérstakur karlahópur gæti verið í boði.
„Það kom fyrirspurn til okkar hvort hægt væri að hafa sér hitting fyrir karla og við ákváðum að gera það enda alltaf opin fyrir hugmyndum sem geta á einhvern hátt létt okkar félagsmönnum að takast á við krabbamein,“ segir hann.
Að hans sögn eiga margir karlar erfitt með að opna sig um veikindi sín, sérstaklega þegar um er að ræða viðkvæm málefni á borð við krabbamein í blöðruhálskirtli. Það geti þó verið mikill styrkur að hitta aðra sem ganga í gegnum sambærilega reynslu.
„Sumum körlum getur reynst erfitt að tala um sín veikindi fyrir framan ókunnuga og þá sér í lagi ef um er að ræða krabbamein í blöðruhálskirtli og svo er bara gott að spegla sig í öðrum sem eru í sömu baráttu. Það eina sem sófinn heima hefur umfram það að hitta mennina er að hann steinþegir, ef það er þá kostur.“
Léttir álaginu af nánustu aðstandendum
Högni segir mikilvægt að þeir sem glíma við alvarleg veikindi hafi svigrúm til að ræða erfiðar hugsanir án þess að leggja allt á herðar fjölskyldunnar.
„Það er þannig, hvort heldur það er karl eða kona sem lendir í því að þurfa að berjast við lífsógnandi sjúkdóm, að það er ekki í lagi að sturta í tíma og ótíma öllum sínum erfiðu hugsunum og verkjasögum yfir fólkið sitt. Það þarf samt að tala um það og þá er gott að fara út úr húsi og hitta fólk sem þekkir tilfinninguna og getur spjallað um hugsanir, verki og fleira.“
Hann bendir jafnframt á að fundirnir snúist ekki eingöngu um sjúkdóminn sjálfan. „Stundum er gott að tala jafnvel bara um veðrið og daginn og veginn,“ segir hann.
Opið hús er hjá Krabbameinsfélagi Árnessýslu að Eyravegi 31 á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 11 til 14 og á föstudögum frá klukkan 11 til 13. Hægt er að hafa samband í netfanginu arnessysla@krabb.is eða í síma 482 1022.
Högni hvetur alla sem hafa kynnst krabbameini, hvort sem er persónulega eða í gegnum aðstandendur, til að kynna sér starfsemi félagsins.