Eldur Ólafsson: „Við erum eina raunverulega leiðin fyrir fjárfesta að fá aðgang að Grænlandi“

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, segir í nýjasta þætti Hluthafaspjallsins að félagið sé í virkum viðræðum við bandaríska fjárfestingarsjóði og opinberar stofnanir Bandaríkjanna um frekara samstarf.

Um sé að ræða bæði eðlilega þróun í ljósi stöðu félagsins og aukinnar eftirspurnar eftir fágætismálmum á heimsvísu.

Auglýsing

„Þetta eru eðlilegar viðræður í ljósi þróunar undanfarinna missera og þeirrar stöðu sem hefur verið að teiknast upp,“ segir Eldur og bendir á að Bandaríkin, Evrópusambandið og einstök ríki líti í auknum mæli til Grænlands sem framtíðarsvæðis í öflun lykilhráefna.

„Við erum leiðin inn í Grænland“

Í þættinum undirstrikar Eldur mikilvægi þess að fjárfestar geti fengið raunverulegan aðgang að grænlenskum auðlindum, svokallað „exposure,“ og segir Amaroq í raun einu leiðina að því markmiði í dag.

„Ef þú ætlar að fá exposure á Grænland… þá erum við eina exposure-inn,“ segir Eldur og bætir við að þetta sé svipað og þegar fjárfestar vildu komast inn á pólskan markað eftir bankahrunið.

Þá hafi menn einfaldlega keypt skráð félag sem veitti aðgang.

Hann rifjar upp að þegar Trump lýsti áhuga á að kaupa Grænland árið 2017 hafi margir hlegið, en nú sé ljóst að baráttan um fágætismálma sé orðin alvarlegt stórveldaspil.

Í beinum samskiptum við bandaríska ríkið

Amaroq er nú í viðræðum við bæði US Ex-Im Bank og DFC (U.S. International Development Finance Corporation), tvær lykilstofnanir í fjármögnun erlendra verkefna sem falla undir bandaríska ríkið.

„Við erum auðvitað í viðræðum við US Ex-Im og DFC og alla þessa sjóði. Þetta er bara meinið sem við höfum byggt námuna á,“ segir Eldur.

Hann staðfestir að þar sé ekki bara um einkaaðila að ræða heldur líka beina aðkomu hins opinbera.

Hann segir áhugann byggjast á auknum áhyggjum Vesturlanda af hálfu við Kína í málmframleiðslu og hagnýtingu tæknilega mikilvægra hráefna.

Eina raunhæfa leiðin fyrir fjárfesta

Í viðtalinu útskýrir Eldur að fyrirtæki líkt og Amaroq séu ekki aðeins að framleiða málma heldur einnig að bjóða fjárfestum einstakt tækifæri:

„Fjárfestar í dag eru að leita: Hvernig get ég fengið einhverja tengingu við þetta land? Og þetta er eina leiðin. Og þetta er staðan sem við ætlum að koma okkur í.“

Hann bendir á að hægt sé að segja sögur og sýna glærur, en það sem skipti mestu máli sé að hafa í raun tekið skófluna í hönd og hafið vinnu á svæðinu.

„Þú kemur ekki í þessa stöðu nema þú hafir physically tekið skófluna og byggt þetta og gert þetta. Þetta er mjög langtímaverkefni.“

Einstök staða og reynsla Amaroq

Eldur telur að Amaroq hafi öðlast einstaka stöðu vegna þess að félagið hefur bæði byggt upp innviði á Grænlandi og aflað sér sértækrar þekkingar þar sem fá önnur fyrirtæki starfa með sama hætti.

„Við höfum tekið okkur það að koma okkur í fágætisstöðu gagnvart þessum fágætismálmum,“ segir hann og vísar til stefnumótunar fyrirtækisins allt frá 2017.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing