Eldur Smári Kristinsson hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar í miskabótamáli sínu gegn Ríkisútvarpinu og Bergsteini Sigurðssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eldi Smára.
Héraðsdómur sýknaði RÚV og Bergstein af kröfum Elds um miskabætur þann 3. nóvember síðastliðinn og dæmdi Eld Smára jafnframt til að greiða málskostnað. Áfrýjunarstefna í málinu, sem skráð er hjá Landsrétti sem mál nr. 828/2025, var gefin út 27. nóvember.
Telur ummælin röng og skaðleg
Málið snýst um ummæli sem féllu í þættinum Forystusætið á RÚV fyrir alþingiskosningarnar 2024. Þar var Eldur ásakaður um háttsemi sem gæti brotið gegn lögum, meðal annars að hafa tekið myndir af börnum og starfsfólki á skólalóð og verið fjarlægður af lögreglu.
Eldur kveðst áfram sannfærður um að ummælin hafi verið „röng, villandi og skaðleg“ og að þau hafi brotið gegn heiðri hans og einkalífi.
Gagnrýnir RÚV harðlega
Í tilkynningu sinni gagnrýnir Eldur RÚV fyrir að hafa ekki sinnt lagalegum skyldum sínum um hlutleysi, fagmennsku og sanngjarna málsmeðferð.
Hann fullyrðir að hvorki hann né Samtökin 22 (nú LGB samtökin) hafi nokkurn tíma fengið andmælarétt í umfjöllun RÚV, né svör við erindum sínum. Að hans mati sé slíkt brot á ábyrgð opinbers fjölmiðils „ógn við lýðræðið og frjálsa umræðu“.
„Dómurinn mat mig sem opinbera persónu“
Héraðsdómur taldi Eld vera opinbera persónu, sem veitti RÚV víðara svigrúm til umfjöllunar. Eldur segir það rangt mat og að sjónarmið hans hafi verið mistúlkuð og rangfærð.
Hann áréttar að hann standi við skoðun sína um að kynin séu tvö og að frjáls umræða um slík mál eigi að vera vernduð.
Þakkar stuðninginn
Að lokum segir Eldur ákvörðunina um áfrýjun hafa verið teknar í samráði við lögmenn og samstarfsfólk, og að markmiðið sé að „tryggja að slík brot á hlutleysi opinberra fjölmiðla verði ekki látin óátalin“.
„Ég mun halda áfram að berjast fyrir gildum sem ég trúi á,“ skrifar hann.