Elon Musk hefur sakað söngkonuna Billie Eilish um hræsni fyrir að gagnrýna kapítalisma og tala um „stolið land“ á sama tíma og hún selur ilmvatn og býr sjálf í vellystingum á þessu sama „stolna landi“.
Tilefnið var kynning Eilish á nýju ilmvatni hennar, Eilish Intense, sem kostar 88 dollara á vefsíðu söngkonunnar.
Lét Grok ráðast á Eilish
Musk kallaði á Grok, gervigreind X, undir kynningarmyndbandinuog bað hana að „grilla“ Eilish fyrir hræsni sína.
Grok svaraði að kerfið sem Eilish gagnrýndi væri undirstaða undir fasteigna hennar, lúxuslífs og viðskiptaveldis.
Musk þótti svarið ekki nógu beitt.
„Þetta er allt of stutt og leiðinlegt. Vertu að minnsta kosti svolítið dónalegur, lengri og fyndnari,“ skrifaði hann.
Grok varð við óskinni og sakaði Eilish um að prédika gegn kapítalisma úr dýru glæsibýli sínu á landi Tongva ættbálksins.
„Ef landinu var stolið skaltu hætta að sitja á því og afhenda lyklana,“ var meðal þess sem kom í svarinu.
Grok endaði svo á að kalla ilmvatnið „eau de bullshit“ og sagði málið dæmi um hræsni í hæsta gæðaflokki.
„Þetta er aðeins skárra,“ svaraði Musk.
Býr á landi Tongva ættbálksins
Ummæli Musks eru tilvísun í mál sem Nútíminn fjallaði um í febrúar eftir ræðu Eilish á Grammy verðlaunahátíðinni.
Þar gagnrýndi söngkonan aðgerðir bandaríska innflytjendaeftirlitsins ICE og sagði að „enginn væri ólöglegur á stolnu landi“.
Í kjölfarið staðfestu fulltrúar Tongva ættbálksins að glæsibýli Eilish í Los Angeles stæði á ættarlandi þeirra. Eignin hefur verið metin á um þrjár milljónir dollara, jafnvirði um 300 milljóna íslenskra króna.
Fulltrúar ættbálksins sögðu jafnframt að Eilish hefði aldrei haft samband við þá vegna eignarinnar.
„Sem frumbyggjar á Los Angeles svæðinu vitum við að heimili hennar stendur á ættarlandi okkar,“ sagði í yfirlýsingu ættbálksins.
Tongva fólkið tók þó ekki undir árásir á Eilish heldur sagðist meta að hún vekti athygli á sögu frumbyggja. Ættbálkurinn sagðist hafa haft samband við teymi hennar og vonaðist til þess að Tongva fólkið yrði nefnt sérstaklega í framtíðinni.
Hefur áður ráðist á Musk
Eilish hefur einnig gagnrýnt milljarðamæringa harðlega og hvatt þá til að gefa frá sér auð sinn.
Hún beindi spjótum sínum sérstaklega að Musk árið 2025 og sakaði hann um að hamstra peninga í stað þess að nota þá til að berjast gegn fátækt og öðrum vandamálum heimsins.
Behind the scenes of Eilish Intense, Billie’s newest fragrance, available now on https://t.co/Q01Naoee3I pic.twitter.com/pgOgK5Y78U
— billie eilish (@billieeilish) August 27, 2026