Í október 2025 kynnti Elon Musk, stofnandi xAI, nýtt verkefni sem kallast Grokipedia. Þetta er gervigreindarstýrt alfræðirit á netinu sem byggir að miklu leyti á efni Wikipedia en hefur verið endurskrifað og staðreyndaskoðað af Grok, gervigreind xAI. Markmiðið er að búa til hlutlaust, nákvæmt og opið fræðsluefni.
Musk hefur lengi gagnrýnt Wikipedia fyrir það sem hann kallar áróður og kerfisbundna vinstri slagsíðu og þá sérstaklega í pólitískum greinum og ævisögum. Gagnrýni Musk náði hámarki í janúar 2025 þegar Wikipedia lýsti handabendingu Musk sem nasistakveðju. Musk sagði að greinin væri árásargrein (e. hit piece).
Hugmyndin að Grokipedia kviknaði formlega í september 2025 á All-In ráðstefnunni þegar David Sacks, ráðgjafi Hvíta hússins í gervigreindarmálum, benti á að xAI gæti birt þekkingargrunn Grok sem Grokipedia til að bjóða upp á val við Wikipedia, sem hefur mikil áhrif á þjálfun gervigreindar.
Fyrir Musk snýst Grokipedia ekki bara um að berjast við Wikipedia. Það er mikilvægur hluti af langtímasýn xAI um að auka skilning manna á alheiminum. Hann segir að ekki sé hægt að þjálfa áreiðanlega gervigreind á gölluðum eða hlutdrægum gögnum.
Grokipedia á því að verða hreinn þekkingargrunnur sem hægt er að nota að kostnaðarlausu. Á endanum vill Musk breyta nafninu í Encyclopedia Galactica sem er tilvísun í vísindaskáldsögur Isaacs Asimovs og gera það að æðsta þekkingargagnagrunn mannkynsins.
Grokipedia er með í dag yfir 1 milljón greinar samanborið við um 7 milljónir greinar hjá Wikipedia. En Musk segist ætla að vöxtur Grokipedia verði gríðarlega hraður með hjálp gervigreindar.
Wikipedia var stofnað af Jimmy Wales og Larry Sanger á árinu 2001 í þeim tilgangi að búa til stærsta og mest uppfærða heimildarit mannkynssögunnar, aðgengilegt öllum endurgjaldslaust um alla framtíð.
Annar stofnandinn, Larry Sanger, hefur verið opinskár undanfarin ár um það sem hann telur vera hnignun vettvangsins frá upprunalegu hlutverki sínu sem hlutlaust fræðirit yfir í hlutdræga áróðursvél og undir áhrifum frá bandarískum leyniþjónustustofnunum, sérstaklega CIA.
Hann fullyrðir að síðan ritskoði nú íhaldssamar skoðanir, bannaði hægri og miðju heimildir og þjóni sem vopn í upplýsingahernaði til að móta almenningsálit. Á árinu 2007 komst upp að fjöldi færslna á Wikipedia sem IP tölur voru raktar til höfuðstöðva CIA í Langley Virginiu.
Áhugavert verður að sjá þróun á þessum alfræðiritum og hvort að þær nái að vera sannleiksvélar framtíðarinnar eða aðeins enn einn valkostur í upplýsingastríðinu.