Elon Musk um íslenskt forsjármál – „The woke mind virus even affects Iceland“

Ríkasti maður heims og eigandi X, Elon Musk hefur nú deilt umfjöllun um íslenskt forsjármál sem áður var fjallað um hér á landi. Með færslunni skrifar Musk: „The woke mind virus even affects Iceland.“

Um er að ræða færslu frá Libs of TikTok þar sem fjallað er um mál föður búsetts á Íslandi, Alexandre Rocha, sem segir að 10 ára sonur hans hafi verið tekinn af honum með dómsúrskurði eftir ágreining milli foreldra um kynvitund barnsins og mögulegt kynleiðréttingarferli.

Auglýsing

Nútíminn fjallaði um málið fyrr í dag

Gríðarvinsæll erlendur miðill fjallar um föður á Íslandi sem missti forræði yfir syni sínum vegna andstöðu við „kynleiðréttingu“

Hefur sjálfur reynslu af svipuðu máli

Musk deildi færslunni án frekari skýringa en með athugasemd um að „jafnvel Ísland sé sýkt af vók heilavírusnum.“

Musk á sjálfur barn sem segist vera trans.

Færslan hefur þegar vakið mikla athygli og rúmlega 10 milljón manns séð hana þegar þetta er skrifað.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing