Emmsjé Gauti, rappari og hlaðvarpsstjórnandi, sest niður með Kiddu í nýjasta þætti Fullorðins og fer yfir lífið frá því hann var unglingur – drykkjuna, vinnuna, neysluna og bataferlið.
Hann talar hreint út og fer einnig inn í pólitíska umræðu um morðið á Charlie Kirk.
Flutti að heiman 17 ára og fór að vinna á börum
Gauti lýsir því að hann hafi hætt í skóla snemma og flutt að heiman 17 ára:
„Ég fór tvö ár í menntaskóla, eða tvær annir eða eitthvað, man það ekki. Svo flutti ég að heiman, fór bara að vinna og djamma og gera músík. Miklu meira en ég átti að vera að gera sem unglingur.“
Hann segir að hann hafi byrjað að vinna í Nýlendubúðinni og síðar farið að vinna á börum, þar sem hann var árum saman.
Þá var djamm og drykkja stór hluti af lífinu, og hann segist hafa byrjað að drekka aðeins 13 ára.
„Það er eins og við getum ekki rætt saman lengur. Það er alltaf stríð, alltaf lið, alltaf eitthvað haturskref á móti haturskrefi“
„Ég þurfti hjálp – ég gat það ekki einn“
Gauti talar opinskátt um neyslu og hversu erfitt það var að ná stjórn á henni:
„Ég höndlaði það ekki lengur. Ég gat ekki hætt að drekka sjálfur. Ég þurfti hjálp.“
Hann segir að hann hafi nú verið edrú í sex ár og sé stoltur af því hvar hann er í dag. En hann segist ekki sjá eftir fortíðinni því hún hafi leitt hann þangað sem hann er núna.
Charlie Kirk og öfgarnar í báðar áttir
Umræðan berst einnig að morðinu á Charlie Kirk, sem var skotinn til bana í miðri ræðu í Utah í byrjun september.
Gauti segir að hann hafi ekki verið hrifinn af Kirk og oft verið ósammála honum, en hann gagnrýnir harðlega viðbrögðin á netinu þar sem fólk fagni dauða hans:
„Mér finnst galið að fólk sé að fagna því að einhver sé skotinn, sama hvað hann segir. Fólk er svo fast í sínum búbblum að það gleymir því að þetta er manneskja með fjölskyldu og líf.“
„Það er eins og við getum ekki rætt saman lengur. Það er alltaf stríð, alltaf lið, alltaf eitthvað haturskref á móti haturskrefi.“
„Ég er farin að ritskoða sjálfa mig“
Kidda tekur undir og segir að hún upplifi að hún þurfi sífellt meira að passa hvað hún segir:
„Ég vil bara ekki að fólk ráðist á mig. Ég hef mínar skoðanir, en ég finn að í sumum hópum má ég ekki segja þær upphátt.“
Hún bætir við að umræðan um transfólk sé orðin þannig að fólk megi ekki spyrja einfaldra spurninga án þess að vera kallað fordómafullt:
„Ég er ekki að reyna að skaða neinn, ég er bara að reyna að fræðast.“
Sjáðu þáttinn í fullri lengd
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift á Brotkast.is.