Í Spjallinu með Frosta Logasyni tók Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur og pistlahöfundur, skýra afstöðu gegn ríkjandi transhugmyndafræði og gagnrýndi harðlega breytingar á stefnu demókrataflokksins í Bandaríkjunum.
Íris, sem hefur búið í Bandaríkjunum í þrjá áratugi, sagðist hafa verið ævilangur stuðningsmaður demókrata en að á því hafi orðið breyting nýlega.
„Ef þú ert karlmaður og heldur að þú sért í röngum líkama, það er bara þín skoðun. Það er bara þín trú. Það er ekkert hlutlægt sem að gerir fólk trans. Enginn fæðist í röngum líkama“
Demókratar „að transa börnin“
Eitt af því sem varð til þess að Íris fór að endurmeta stuðning sinn við demókrataflokkinn voru ofsafengin viðbrögð hinna frjálslyndu við umfjöllun rithöfundarins J.K. Rowling um réttindi kvenna.
„Ég las greinina hennar og gat ekki séð neitt athugavert við hana. Og þá fór ég að átta mig á hvað demókratar eru að gera, minn flokkur. Þeir eru að transa börnin,“ sagði hún.
Íris lýsti áhyggjum sínum yfir því að demókratar styddu í orði og á borði aðgerðastefnu sem hún telur fela í sér skaðleg inngrip gegn börnum: „Þeir eru beinlínis að láta skera kynfærin af alheilbrigðum börnum til þess að breyta þeim, af því þau eru fædd í röngum líkama.“
„Ég yfirgaf ekki demókrataflokkinn – þeir yfirgáfu mig,“ sagði Íris og bætti við að vinstri öfgaöfl hafi yfirtekið flokkinn.
„Það er ekkert hlutlægt sem gerir fólk trans“
Íris hafnaði alfarið þeirri hugmynd að fólk fæðist í „röngum líkama“.
„Ef þú ert karlmaður og heldur að þú sért í röngum líkama, það er bara þín skoðun. Það er bara þín trú. Það er ekkert hlutlægt sem að gerir fólk trans. Enginn fæðist í röngum líkama.“
Íris sagði jafnframt að hún væri „mótfallin því að tala um trans eins og það sé einhver þriðji flokkur af fólki sem þurfi að hafa einhver sérréttindi umfram aðra þjóðfélagshópa.“
„Mannverur skiptast í karla og konur“
Þegar Frosti spurði hana út í skilgreiningar á trans, tók Íris skýra afstöðu: „Ég get vel fallist á að einhver trúi því að hann sé fæddur í röngum líkama. En ég fellst ekki á að það sé einhver hlutlægur sannleikur.“
„Hlutlægur sannleikur með mannverur er að mannverur skiptast í karla og konur,“ sagði hún. „Við erum öll annaðhvort gagnkynhneigð, samkynhneigð eða tvíkynhneigð. Og bara, full stopp. That’s it.“
Umræða klofin og hættulega einhliða innan stjórnmála
Í þættinum ræddu Frosti og Íris einnig pólitískan klofning og skort á samhljómi í vestrænum samfélögum. Frosti benti á að skiptar skoðanir væru á því hvort transkona væri kona sem fæðst hefði í röngum líkama eða karl sem einfaldlega upplifði sig sem konu. Eitthvað sem Frosti taldi mjög einfalt og mikilvægt að skera úr um þannig að allir gætu verið sammála um hvað það væri að vera trans.
Íris taldi hins vegar að meirihlutinn væri ósammála öfgastefnunni:
„Samkvæmt nýlegri könnun frá New York Times kemur í ljós að þetta er 80/20 mál og jafnvel 80% demókrata eru ekki sammála þessari stefnu,“ sagði hún. „Þrátt fyrir það eru kjörnir fulltrúar demókrata 90% með þessa línu.“ sagði Íris sem telur ljóst að demókrataflokkurinn ætli sér að deyja á þessari hæð eins og hún orðaði það.
Hægt er að sjá brot úr þættinum hér fyrir neðan en þátturinn er aðgengilegur í heild sinni á Brotkast.is.