Epstein öðlingurinn sviptur konunglegum titlum og tilheyrir nú sótsvörtum almúganum

Karl Bretakonungur hefur formlega svipt bróður sinn, Andrew Mountbatten Windsor, öllum konunglegum titlum og réttinum til að nota heitið Hans konunglega hátign (HRH, His Royal Highness).

Þetta kemur fram í skjölum, svokölluðum Letters Patent, sem birt voru opinberlega í breska ríkisskráningarblaðinu The Gazette.

Auglýsing

Í tilkynningunni segir að „Andrew Mountbatten Windsor skuli ekki lengur njóta titilsins eða virðingarheitisins ‘Royal Highness’ né bera titil prins“.

Loka tímabili í niðurlægingu hertogans fyrrverandi?

Ákvörðunin markar nýjan kafla í langvarandi niðurlægingu Andrew, sem áður bar titilinn hertogi af York.

Mannorð hans hefur beðið hnekki eftir tengsl hans við barnaníðinginn Jeffrey Epstein og frásagnir Virginiu Giuffre, sem lýsti kynferðisofbeldi af hans hálfu í ævisögu sem kom út eftir dauða hennar fyrr á árinu.

Andrew greiddi Guiffre um tvo milljarða króna í skaðabætur árið 2022 en þó háð þeim skilyrðum að hann viðurkenndi ekki sekt í málinu. Breskir skattborgarar voru þó þeir sem greiddu sekt Andrew í raun því hann borgaði lítið sem ekkert úr eigin vasa.

Konungshöllin staðfesti í síðustu viku að Andrew, 65 ára, hefði þegar misst titil prins og skyldi flytja úr 30 herbergja setri sínu í Royal Lodge innan Windsor lóðarinnar.

Í yfirlýsingu hallarinnar kom fram að „viðurlögin væru talin nauðsynleg“ vegna umdeildra tengsla hans við Epstein.

Nýjar sannanir um samskipti við Epstein

Ný skjöl úr dómsmáli í Bandaríkjunum sýna að Andew hafði samband við Epstein eftir að hann var látinn laus úr fangelsi og lagði til að þeir hittust „til að spjalla“.

Í tölvupósti sem birtist áður hafði hann einnig sagt Epstein: „Við erum saman í þessu,“ daginn eftir að myndin fræga af honum með Giuffre birtist opinberlega.

Andrés hefur neitað öllum ásökunum og neitar að hafa hitt Giuffre, sem „svipti sig lífi“ 41 árs gömul.

Missir heimilið en heldur orðum sínum fyrir herskyldu

Hertoginn fyrrverandi hefur verið fjarlægður af opinberri heimasíðu bresku konungsfjölskyldunnar og er nú alfarið horfinn úr opinberum skrám.

Hann fær þó að halda orðum sínum fyrir þjónustu í Falklandseyjastríðinu, þar sem hann starfaði sem þyrluflugmaður og tók þátt í björgunar- og árásaraðgerðum.

Dætur halda titlum sínum – en orðspor föðurins skaðar þær

Dætur Andrew, Beatrice prinsessa (37) og Eugenie prinsessa (35), halda titlum sínum.

Heimildir segja þó að Karl konungur hafi rætt við Vilhjálm prins, sem styður ákvörðun föður síns, og gæti þurft að „klára verkið“ þegar hann tekur við krúnunni.

Sérfræðingar telja að orðspor föðurins hafi skaðað prinsessurnar og gæti gert þeim erfiðara fyrir í atvinnulífi og samfélagi.

Sarah Ferguson í áfalli

Fyrrverandi eiginkona Andrew, Sarah Ferguson, er sögð í áfalli eftir niðurlæginguna og íhugar að yfirgefa Bretland.

Heimildir segja hana forðast almenning og hafi lokað sig inni á heimili þeirra.

Stuðningur innan fjölskyldunnar

Samkvæmt Daily Mail styður Vilhjálmur prins aðgerðir Karls að fullu, ásamt flestum innan konungsfjölskyldunnar, sem telja tímabært að loka þessu viðkvæma máli.

Samkvæmt heimildum hyggst Andrew flytja í einkaeign á Sandringham landareign konungs, þar sem hann mun lifa sem almennur borgari, í fyrsta sinn á ævi sinni.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing