Rannsóknarblaðamaðurinn og Youtube stjarnan Coffeezilla fer yfir skjöl Epstein gögnunum og segir þau sýna hvernig áhrifamiklir aðilar hafi annaðhvort átt persónuleg samskipti við Jeffrey Epstein eða unnið að því að endurreisa og fegra ímynd hans eftir sakfellingu fyrir níðingshátt árið 2008. Hann tekur fram að þeir sem nefndir eru neiti saknæmri háttsemi og að margt sé óstaðfest, en telur gögnin sýna tilraun þeirra til að stýra umfjölluninni og verja Epstein.
Steve Bannon: „Kremjum mansalsfréttina og gerum Epstein mannlegan“
Samkvæmt Coffeezilla sýna tölvupóstar Steve Bannon, sem er þekktur úr bandrískri pólitík, í hlutverki ráðgjafa sem leggur línurnar fyrir almannatengslaherferð fyrir Epstein. Þar er meðal annars rætt um að hrekja fréttir um hann, „kremja mansals ruglið“ og byggja Epstein upp sem mannvin. Coffeezilla segir Bannon einnig hafa tekið þátt í hugmyndavinnu um heimildarmynd sem þeir lögðu á ráðin um að gera til að „humanize the monster“, eða sýna „skrímslið“ (Epstein) í nýju ljósi til að reyna að fá almenning til að fá samúð með honum.
Woody Allen nefndur sem leikstjóri
Coffeezilla dregur einnig fram samskipti sem hann segir tengjast Woody Allen. Í einu tilviki er vísað til þess að eitthvað sé of gróft til að setja í skrif. Coffeezilla notar þetta sem dæmi um dulkóðað orðalag í samskiptum kringum Epstein, þó hann segist ekki fullyrða um refsiverða merkingu. Þeir ræða þó um að Allen hafi sagst ætla að hjálpa til við að gera myndina sem besta og jafnvel sjá um að klippa hana fyrir þá.

Eftir það Spyr Epsteions Bannon hvort þeir ættu að taka kvöldverð með Allen eða hvort að þá yrðu „of margir níðingar á einum stað.“

Branson og fleiri: ráðleggingar um orðræðu og ímynd
Í umfjölluninni eru líka nefnd fleiri áhrifamiklir einstaklingar sem Coffeezilla segir hafa veitt Epstein ráð eða sýnt honum stuðning. Hann nefnir Richard Branson sem dæmi um aðila sem hafi komið með hugmyndir um hvernig hægt væri að gera lítið úr málinu opinberlega, til dæmis með því að segja að brot Epstein hafi verið „mistök sem væru liðin tíð og búið að læra af“. Coffeezilla nefnir einnig að aðrir, þar á meðal PR fólk, hafi verið í kringum verkefni sem sneru að því að fegra orðspor Epstein.
Hann segir skjölin sýna sama mynstrið aftur og aftur, að neita öllu, viðurkenna sem minnst, og reyna að snúa umræðunni Epstein og félögum hans í vil, frekar en viðurkenna sekt að taka ábyrgð. Samhliða gagnrýnir hann að ritskoðun í skjölunum sé klaufaleg, sem geri það að verkum að nöfn og samhengi birtist stundum í einu skjali en sé falið í öðru.