Er Ísland enn draumaáfangastaðurinn sem ferðabæklingarnir lofa eða hefur eitthvað breyst?
YouTube stjarnan Jan In Iceland varpar fram spurningunni sem sífellt fleiri virðast spyrja, er Ísland enn þess virði að heimsækja árið 2026?
Tveir heimar
Jan segir landið skiptast upp í tvo heima. Annars vegar er það ímyndin sem flestir þekkja af samfélagsmiðlum. Fossar, óspillt fjalllendi og auðir vegir. Hins vegar er raunveruleiki margra ferðamanna allt annar yfir háannatímann þar sem þín bíða þéttsetin og dýr bílastæðaplön, raðir við vinsælustu náttúruperlurnar og ótal gjöld sem áður voru ekki til staðar.
Í myndbandinu fer Jan yfir hvernig ferðaþjónustan hefur þróast síðasta áratug eða svo. Ferðamönnum hefur fjölgað verulega og árið 2025 heimsóttu um 2,3 milljónir landið. Þó sé fjöldinn ekki jafnt dreifður, heldur safnist mestur hluti ferðamanna á tiltekin svæði eins og Gullna hringinn og Suðurströndina.
Verðlag sem margir finna fyrir
Jan ræðir einnig um kostnaðinn. Kostnaður við bílaleigubíla, gistingu og veitingastaði hrannast fljótt upp, sérstaklega yfir sumarmánuðina. Þá hafa bílastæðagjöld við vinsæla staði bæst við, sem geta safnast upp þegar fólk er nokkrar vikur á ferðinni.
Hann bendir þó á að Ísland sé ekki eitt um hátt verðlag, heldur falli það í sama flokk og önnur dýr lönd í Evrópu. Munurinn liggi frekar í væntingum ferðamanna og undirbúningi.
En finnst Jan Ísland ennþá þess virði að heimsækja?
Því er svarað hér fyrir neðan.
https://www.youtube.com/watch?v=UjdK_VMSJ6U