Er þetta lýðræði að hætti Evrópusambandsins?

Eftir Ernu Bjarnadóttur

Enginn vísar jafn oft til lýðræðis og Evrópusambandið. Sambandið hampar þessu gildi óspart en teflir því jafnframt fram gegn þeim sem standa gegn pólitískum markmiðum þess.

Auglýsing

Þegar betur er að gáð birtist þó sérstakur skilningur á lýðræði, sui generis. Þetta kemur sérstaklega skýrt í ljós þegar sætta þarf sig við ósigur í kosningum vegna þess að almenningur tók ekki undir háleit markmið leiðtoga Evrópu.

Tíu dögum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst skrifaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Helen McEntee, utanríkis- og viðskiptaráðherra Írlands, en Írland fer nú með formennsku í ráði Evrópusambandsins. Í bréfinu sagði hún að ríkisstjórnin virti niðurstöðuna og myndi því ekki beita sér fyrir því að aðildarviðræður yrðu hafnar að nýju. Jafnframt sagði hún að staða aðildarumsóknar Íslands væri óbreytt.

Íslenska þjóðin var ekki spurð hvort gera ætti tímabundið hlé á umsóknarferlinu. Hún var spurð hvort hefja ætti að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Skýr meirihluti kjósenda, 52,8%, svaraði nei.

Hvað merkir það þá að segja að ríkisstjórnin „virði“ niðurstöðuna en halda því jafnframt fram að staða umsóknarinnar sé óbreytt?

Þegar nei á ekki að merkja nei

Íslensk stjórnmál hafa löngum einkennst af átökum. Oft hefur verið hart deilt og úrslit kosninga valdið þeim sem tapa miklum vonbrigðum. Ein af grundvallarreglum íslenskrar lýðræðishefðar hefur þó verið einföld: Sá sem tapar sættir sig við niðurstöðuna.

Það þýðir ekki að menn þurfi að skipta um skoðun. Þeir sem vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið mega að sjálfsögðu halda áfram að færa rök fyrir aðild. Viðreisn þarf ekki að hverfa frá Evrópustefnu sinni vegna niðurstöðunnar 29. ágúst.

Það er hins vegar allt annað en að ganga út frá því að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu gildi aðeins þar til hentugt tækifæri gefst til að bera sömu spurningu aftur undir kjósendur.

Daginn eftir að bréf utanríkisráðherra var sent hrósaði Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður og varaformaður Viðreisnar, Þorgerði Katrínu fyrir að vera reiðubúna, þegar tækifæri gæfist, til að gefa íslensku þjóðinni annað tækifæri til að taka afstöðu til aðildarviðræðna og „taka slaginn aftur“.

Orð hennar skipta máli vegna þess að þau sýna hvernig orðalag utanríkisráðherra er skilið meðal flokksfélaga hennar: niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar er virt að formi til, en jafnframt gengið út frá því að aðildarferlið standi áfram opið fyrir aðra tilraun.

Þegar það að sætta sig við niðurstöðuna er sett fram sem að „gefast upp“ er sambandinu milli kjörinna stjórnmálamanna og kjósenda snúið við með lúmskum hætti. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður þá að áfalli sem stjórnmálamaðurinn varð fyrir fremur en ákvörðun sem kjósendur tóku.

Að knýja fram endurtekna atkvæðagreiðslu

Sé málið skoðað í þessu ljósi er íslenska dæmið ekki einstakt. Það fellur að kunnuglegu mynstri í sögu Evrópusamrunans: Þegar almenningur segir nei er það ekki endilega meðhöndlað sem endanleg ákvörðun heldur sem pólitísk hindrun sem unnt sé að yfirstíga með tryggingum, undanþágum, meira eða minna opnum þrýstingi og annarri tilraun.

Danir höfnuðu Maastricht-sáttmálanum árið 1992 en samþykktu hann árið eftir, eftir að samið hafði verið um undanþágur. Írar höfnuðu Nice-sáttmálanum árið 2001 og Lissabon-sáttmálanum árið 2008 en samþykktu síðar báða í síðari þjóðaratkvæðagreiðslum eftir frekari tryggingar og pólitískar viðræður.

Stjórnarskrársáttmála ESB var einnig hafnað í Frakklandi og Hollandi árið 2005. Lissabon-sáttmálinn, sem var að verulegu leyti sama efnis, var síðar ekki borinn undir kjósendur á ný, hvorki í Frakklandi né Hollandi.

Aðstæður voru ólíkar, en undirliggjandi gagnrýnin er kunnugleg: neikvæð niðurstaða er ekki talin ákvörðun sem beri að virða heldur vandamál sem þurfi að yfirstíga eða finna leið fram hjá. Í sinni beittustu mynd hefur gagnrýnin á þessa hefð verið orðuð þannig: kosið er eins oft og nauðsynlegt er þar til „rétt“ niðurstaða fæst – eða ekki kosið þegar hættan á öðru nei er talin of mikil.

Þess vegna skiptir framganga utanríkisráðherra máli langt út fyrir þá deilu sem nú stendur. Hún vekur þá spurningu hvort íslensk stjórnmál séu farin að tileinka sér þetta „gildi“ ESB: þá hugmynd að lýðræðislegt nei gildi aðeins þar til næsta tækifæri gefst til að spyrja aftur.

Við ósigur reynir á lýðræðið

Það er auðvelt að virða vilja kjósenda þegar þeir komast að þeirri niðurstöðu sem maður sjálfur vonaðist eftir. Hið raunverulega próf kemur þegar þeir gera það ekki.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur allt frá stofnun Viðreisnar fyrir tíu árum barist hart fyrir því að aðildarviðræður við ESB yrðu hafnar að nýju. Hún tapaði þessari atkvæðagreiðslu. Eftir tíu ára baráttu stendur hún tómhent. Það er ekkert óeðlilegt við að hún sé áfram þeirrar skoðunar að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið; þjóðaratkvæðagreiðslan sviptir hana ekki réttinum til að halda áfram að færa rök fyrir þeirri afstöðu.

En í samskiptum við Evrópusambandið talar utanríkisráðherra ekki sem formaður stjórnmálaflokks síns. Hún talar fyrir hönd íslenska ríkisins og þjóðarinnar allrar. Sá sem skýrir fulltrúum Evrópusambandsins frá niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ber því skyldu til að gera rétta grein fyrir henni.

Íslendingar voru spurðir hvort hefja ætti að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Íslendingar sögðu nei.

Þarna hættir umræðan að snúast um vonbrigði eins ráðherra og verður að spurningu um lýðræðismenningu. Margir líta á framgöngu Þorgerðar Katrínar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem hámark hrokans. Í raun kann utanríkisráðherra þó að hafa gert íslensku þjóðinni greiða: Hún hefur sýnt, skýrar en nokkur fræðileg umræða hefði getað gert, hvernig íslensk útgáfa af lýðræði kynni að líta út ef Ísland gengi einn daginn í Evrópusambandið.

Virðing fyrir lýðræðinu felst öðru fremur í því að sætta sig við svar sem manni líkar ekki. Sá sem strax eftir nei er farinn að undirbúa næstu tilraun tileinkar sér ekki anda lýðræðisins heldur skilning á lýðræði þar sem vilji þjóðarinnar gildir aðeins svo lengi sem hann þjónar pólitískum tilgangi.

 

Höfundur er hagfræðingur með diplómu í opinberri stjórnsýslu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing