Kona segist hafa orðið fyrir áreitni eða ógnandi framkomu karla í þrjú skipti þegar hún hefur komið í Nettó í Lágmúla vegna ballettæfinga dóttur sinnar.
Í einu tilvikinu segir hún mann hafa elt sig út úr versluninni, lagst yfir hana þar sem hún var að festa dóttur sína í bílbelti og síðan gripið utan um hana. Hún segist hafa verið ein með barninu og orðið mjög skelkuð.
Konan greinir frá reynslu sinni í færslu í Facebook hópnum Mæðra tips. Konan kemur fram undir nafni en Nútíminn ætlar ekki að nafngreina hana að svo stöddu. Þar kallar hún eftir því að öryggisvörður verði hafður í versluninni.
Segir mann hafa elt sig að bílnum
Konan segir að hún og dóttir hennar komi stundum við í Nettó eftir ballettæfingar í Lágmúla. Í fyrsta tilvikinu hafi maður elt þær út úr versluninni.
„Þegar ég er að setja stelpuna í belti kemur hann aftan að mér og leggst á mig inn í bílinn,“ skrifar hún.
Hún segist hafa risið upp úr bílnum en maðurinn þá tekið utan um hana og haldið henni fastri.
„You beautiful, I need woman,“ hafi hann sagt.
Konan segist hafa svarað því til að hún ætti mann og kallað eins og hún væri að bíða eftir honum. Við það hafi maðurinn hlaupið á brott.
„Ég var ein með stelpuna. Ég var vægast sagt skelkuð.“
Reiddist þegar hún neitaði að greiða fyrir hann
Í öðru tilviki segir konan mann hafa elt sig um verslunina og spurt hvort hann mætti setja matvörur í innkaupakörfu hennar svo hún greiddi fyrir þær.
Þegar hún neitaði hafi maðurinn reiðst, bölvað henni og fylgt henni fast eftir um verslunina. Hún hafi samþykkt að greiða fyrir gosflösku handa honum þar sem hún var hrædd og vildi ekki valda uppnámi fyrir framan dóttur sína.
Maðurinn hafi síðan beðið fyrir utan verslunina eftir flöskunni.
„Ég rétti honum flöskuna og reyndi að labba hratt að bílnum í von um að hann myndi ekki elta mig. Sem betur fer gerði hann það ekki.“
Faldi sig þar sem dóttirin æfði
Í þriðja skiptið segist konan hafa tekið eftir stórum manni sem starði stöðugt á hana og virtist fylgjast með ferðum hennar um verslunina.
Maðurinn hafi hvorki verið með körfu né vörur og síðan komið að sjálfsafgreiðslukössunum þegar hún ætlaði að greiða.
Konan segist hafa gengið rólega út en síðan hlaupið aftur inn í húsnæðið þar sem dóttir hennar var á ballettæfingu. Hún hafi ekki þorað að fara með innkaupapokann út í bíl af ótta við að maðurinn sæi hvert hún færi.
Kallar eftir öryggisverði
Konan segist ekki ætla aftur í Nettó í Lágmúla og telur að öryggisvörður eigi að vera í versluninni.
„Þar ætti að vera öryggisvörður því starfsmenn eru stundum og oftast bara unglingar,“ skrifar hún og hvetur aðrar mæður til að vera á varðbergi.
Nýjasta atvikið átti sér stað í þessari viku
Í samtali við Nútímann segir konan að atvikin þrjú hafi öll átt sér stað á síðastliðnu einu og hálfu ári og það nýjasta í þessari viku. Hún vill ekki gefa upp nákvæma dagsetningu af ótta um öryggi sitt.
Hún hefur ekki enn tilkynnt atvikin til lögreglu eða Nettó. Konan segist fara á svæðið tvisvar í viku vegna æfinga dóttur sinnar og hafa óttast að einhver kynni að sitja þar fyrir henni af gremju. Hún hyggst ræða við fulltrúa Nettó á morgun og í framhaldinu hafa samband við lögreglu. Hún ætlar fyrst að leita til Samkaupa, sem reka Nettó.
Nútíminn hefur sent Nettó fyrirspurn vegna málsins. Svar fyrirtækisins verður birt þegar það berst.


