Erna krefst afsagnar utanríkisráðherra eftir ósigurinn

Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið hljóta að hafa pólitískar afleiðingar fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Í grein sem Erna birti á Vísi í kvöld segir hún atkvæðagreiðsluna hafa verið persónulegt pólitískt verkefni utanríkisráðherrans. Þorgerður Katrín hafi stofnað Viðreisn beinlínis til að vinna að inngöngu Íslands í Evrópusambandið og síðan beitt pólitísku valdi sínu til að koma málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Auglýsing

„Hún lagði fjármuni og stofnanir ríkisins, einkum og sér í lagi utanríkisráðuneytið, undir sína eigin pólitísku stefnu,“ skrifar Erna.

Hún gagnrýnir jafnframt málflutning ráðherrans í aðdraganda kosninganna og segir hann fremur hafa byggst á vafasömum fullyrðingum og tilfinningalegum þrýstingi en yfirveguðum rökum.

Segir þjóðinni hafa verið sundrað

Erna sakar utanríkisráðherra um að hafa verið reiðubúna að valda djúpstæðri sundrungu meðal þjóðarinnar í þágu eigin pólitísks metnaðar.

Þrátt fyrir að pólitísku valdi, fjármunum og áhrifum ríkisins hafi verið teflt fram í þágu verkefnisins hafi íslenska þjóðin hafnað því. Þá niðurstöðu beri að virða.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst greiddu 52,8 prósent atkvæði gegn því að Ísland hæfi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið en 47,2 prósent studdu tillöguna.

Erna segir ráðherra sem sjálfur hrindi af stað svo stóru pólitísku metnaðarmáli, leiði það og bíði síðan ósigur ekki geta haldið áfram störfum eins og ekkert hafi gerst.

„Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar,“ skrifar hún.

„Afsögn er nauðsynleg“

Erna telur að utanríkisráðherra hafi glatað trausti stórs hluta kjósenda og segir afsögn hennar eðlilega niðurstöðu eftir ósigurinn.

„Afsögn er ekki aðeins viðeigandi. Hún er nauðsynleg afleiðing þess sem gerst hefur,“ segir Erna að lokum.

Erna Bjarnadóttir er með meistaragráðu í hagfræði frá University College of Wales og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing