Ert þú á leið til Spánar á næstunni? – Mikill hiti í kortunum

Ferðamenn sem hyggjast heimsækja Spán á næstu vikum gætu þurft að undirbúa sig fyrir óvenjumikinn hita. Veðurspár gera ráð fyrir að hitabylgja geti skollið á strax í næstu viku og að hitinn verði yfir meðallagi víða um land allt sumarið.

Allt að 40 stig á Suður Spáni

Samkvæmt spám er búist við að hitinn á suðurhluta Spánar fari upp í allt að 40 gráður strax um helgina. Veðurfræðingar útiloka ekki að hitinn geti orðið enn meiri síðar í mánuðinum ef heitir loftstraumar frá Norður Afríku berast yfir Íberíuskagann.

Auglýsing

Spænska veðurstofan AEMET spáir því að næstu þrír mánuðir verði hlýrri en venjulega um allt land. Það á jafnt við um mið- og suðurhluta Spánar, Miðjarðarhafsströndina og Kanaríeyjar.

Tenerife og Kanaríeyjar einnig yfir meðallagi

Þótt hitinn á Kanaríeyjum verði yfirleitt ekki jafn mikill og á heitustu svæðum Spánar gera langtímaspár ráð fyrir að hitastig verði yfir meðallagi þar í sumar. Ferðamenn á Tenerife gætu því átt von á heitari dögum en venjulega, sérstaklega þegar heitir vindar frá Sahara ná til eyjanna.

Ferðamenn hvattir til að undirbúa sig

Þeir sem eru á leið til Costa del Sol, Málaga, Sevilla, Alicante, Benidorm eða Tenerife á næstu vikum eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspám, drekka nægan vökva og forðast að dvelja lengi utandyra á heitasta tíma dagsins.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing