Evrópusambandið neyðir samfélagsmiðla til að takmarka dreifingu upplýsinga vegna Ceuta – Víðtækara ritskoðunarvaldi laumað inn bakdyramegin

Evrópusambandið hefur fengið Meta og TikTok til að koma á sérstöku kerfi með „staðreyndavökturum“ (fact checkers) þar sem upplýsingar um landamæraferðir til Spánar geta verið meðhöndlaðar sérstaklega og dreifing þeirra takmörkuð.

Aðgerðirnar koma í kjölfar þess að gríðarlegur fjöldi fólks streymdi frá Marokkó yfir til spænsku borgarinnar Ceuta í lok júlí. Meira en 70 þúsund manns reyndu þá að komast inn í borgina á einum degi og nærri hundrað létust.

Auglýsing

Henna Virkkunen, tæknimálastjóri framkvæmdastjórnar ESB, sagði Meta og TikTok hafa virkjað neyðarreglur og komið á sérstöku samstarfskerfi með staðreyndavökturum. Framkvæmdastjórnin og Europol eru jafnframt í daglegum samskiptum við fyrirtækin vegna málsins.

„Sjálfviljugt“ samstarf undir eftirliti ESB

Framkvæmdastjórn ESB segir kerfið formlega sjálfviljugt og að hún skipi Meta og TikTok ekki að fjarlægja einstakar færslur. Fyrirtækin ákveði sjálf hvort loka eigi á efni eða draga úr dreifingu þess.

Það er þó sérstök skilgreining á sjálfviljugu samstarfiS þegar beiðnin kemur frá sama valdi og hefur víðtækt rannsóknar- og sektarvald yfir fyrirtækjunum.

Samkvæmt Digital Services Act (DSA) getur framkvæmdastjórn ESB sektað alla samfélagsmiðla um allt að sex prósent af árlegri heimsveltu þeirra fari þau ekki eftir þeim lögum sem sambandið setur þeim. Hún getur einnig krafist upplýsinga og aðgangs að gögnum og reikniritum fyrirtækjanna.

Þá var sér-evrópsk reglugerð gegn svokölluðum falsfréttum og upplýsingaóreiðu felldur inn í DSA kerfið árið 2025 og er nú eitt þeirra viðmiða sem notuð eru við mat á því hvort fyrirtækin uppfylli skyldur sínar samkvæmt lögunum.

Byrjar á fölskum upplýsingum um opin landamæri

Tilgangur kerfisins, samkvæmt ESB, er að stöðva upplýsingar sem kunna að lokka fólk í hættulegar ferðir yfir landamærin. Meðal þess sem dreift var fyrir atburðina í Ceuta voru rangar fullyrðingar um að allir sem kæmust inn í Ceuta eða Melilla fengju hæli. Meta og TikTok hafa einnig skuldbundið sig sérstaklega til að banna efni tengt smygli á fólki yfir landamærin.

En þó yfirlýstur tilgangur kerfisins hljómi fallega er það ekki afmarkað við slíkar fullyrðingar eða beinar leiðbeiningar um smygl.

Talsmaður framkvæmdastjórnarinnar sagði að staðreyndavaktarar gætu merkt það sem þeir telja vera „upplýsingaóreiðu“ og farið fram á að dreifing hennar verði takmörkuð eða efnið fjarlægt. Meta og TikTok þurfa síðan að bregðast við slíkum ábendingum, enda eru skuldbindingar þeirra gegn upplýsingaóreiðu hluti af eftirliti ESB.

Þessi takmörkun, sem sögð er ætlað að stöðva upplýsingaóreiðu um opin landamæri, getur vegna orðalagsins einnig náð til upplýsinga um fjölda innflytjenda, stöðu við landamærin eða stefnu stjórnvalda ef þær eru metnar ‘skaðlegar’ og tengdar hugsanlegum fólksflutningum.“

Það er ekki þar með sagt að slíkt hafi þegar gerst en töluverður munur er á orðalagi reglnanna, sem veitir þessum staðreyndavökturum töluvert vald yfir því hvaða upplýsingar eru teknar til sérstakrar skoðunar og kunna í kjölfarið að fá takmarkaða dreifingu. og er í raun mjög óskýrt hversu langt þessar valdheimildir ná í raun.

Þó svo embætissmenn selji kerfið sem nauðsynlegt í baráttunni við upplýsingaóreiðu býður orðalagið upp á miklu meira en það.

Zuckerberg sagði staðreyndavaktara hafa orðið alltof pólitíska

Það vekur sérstaka athygli að Meta sjálft lýsti í fyrra mikilli vantrú á nákvæmlega þessari aðferð.

Í janúar 2025 tilkynnti fyrirtækið að það hygðist leggja niður kerfið þar sem þriðja aðila var falið að ákveða hvað væru staðreyndir og hvað ekki. Meta sagði staðreyndavaktara hafa mikla hlutdrægni og pólitísk sjónarmið og að það hefði haft áhrif á bæði hvað þeir ákváðu að skoða og hvernig þeir mátu það. Afleiðingin hefði verið að lögmæt pólitísk umræða var merkt sem óreiða og dreifing hennar skert.

Mark Zuckerberg sagði staðreyndavaktarana hafa orðið „too politically biased“, eða allt of pólitískt hlutdræga:

„A program intended to inform too often became a tool to censor.“

Kerfi sem átti að upplýsa almenning hefði með öðrum orðum of oft orðið að tæki til ritskoðunar.

Nú, rúmu einu og hálfu ári síðar, vinnur Meta á ný með staðreyndavökturum að því að ákveða hvaða upplýsingar eigi að draga úr dreifingu á, að þessu sinni eftir afskipti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing