Slóvakíski Evrópuþingmaðurinn Milan Mazurek lét afar vægast sagt hörð orð falla úr ræðustól sínum á Evrópuþinginu þar sem hann sakaði evrópska vinstrimenn um að vera „óvinir Evrópu“ og að stefna álfunni í glötun.
Í ræðunni gagnrýnir hann kröfur evrópskra vinstrimanna sem hann segir snúast um að fordæma bandarísk stjórnvöld og fjölga ólöglegum innflytjendum. Hann segir slíka afstöðu sýna að kollegar hans í Evrópu hans hafi misst vitið.
Segir Evrópu vera á barmi upplausnar
Mazurek segir stöðuna í Evrópu vera myrka. Hann segir að á Spáni hafi hálf milljón ólöglegra innflytjenda fengið dvalarleyfi. Í Frakklandi sé handsprengjum kastað inn á hárgreiðslustofur um hábjartan dag. Í Þýskalandi líði ekki sá dagur að ekki sé einhver myrtur með hnífi og í Svíþjóð sé sprengjuárás annan hvern dag.
Að hans mati séu þetta hin raunverulegu vandamál Evrópu, sem stjórnmálamenn á vinstri vængnum vilji ekki horfast í augu við.
Sakar vinstrimenn um hræsni gagnvart Bandaríkjunum
Hann segir að á meðan ofbeldi og óöryggi aukist í Evrópu séu evrópskir vinstrimenn uppteknir af því að ræða réttarríkið í Bandaríkjunum og gagnrýna bandarísk stjórnvöld fyrir að vísa ólöglegum innflytjendum og glæpamönnum úr landi.
Mazurek segir vestrænar borgir í Evrópu smám saman vera að breytast í átakasvæði og telur að Evrópubúar ættu að innleiða sömu aðgerðir og Bandaríkjamenn.
Kallar eftir brottvísunum og pólitískri baráttu
Í lok ræðunnar hvetur hann til þess að ólöglegir innflytjendur verði sendir frá Evrópu og að dvöl þeirra verði ekki lögleidd. Hann segir að andstæðingar hans hati Evrópu og þjóðir hennar og vilji eyðileggja framtíð álfunnar.
„Við verðum að stöðva ykkur. Við verðum að sigra ykkur pólitískt ef við viljum lifa af,“ skrifar hann og bætir við að annars verði það endir Evrópu.
⚠️ The European left calls for condemnation of the 🇺🇲 US government and legalization of illegal migrants! pic.twitter.com/GBsJKVCjk2
— Milan Mazurek (@MilanMazurek) February 12, 2026