Falin eyðimörk í hjarta Íslands – Vissir þú þetta?

Í nýju myndbandi fjallar fræðslurásin Geography By Geoff um lítt þekkta staðreynd um Ísland: að miðja landsins sé í raun eyðimörk.

Þrátt fyrir jökla, fossa og úrkomusamt veður við strendur landsins er hálendið ótrúlega þurrt og nánast óbyggilegt.

Auglýsing

Myndbandið útskýrir hvernig samspil eldfjalla, jökla og skýja veldur því að á stórum svæðum innanlands fellur minni úrkoma en víða í heitum eyðimörkum.

Þar sígur vatn beint niður í hraunið, jarðvegur nær ekki að myndast og líf á erfitt uppdráttar.

Myndbandið skýrir af hverju nær allur íbúafjöldi Íslands býr við strendur landsins og hvers vegna miðjan er enn auð og hrá.

Myndbandið fræðir á aðgengilegan og skemmtilegan hátt hátt og varpar nýju ljósi á land sem flestir telja sig þekkja.

Myndbandið er þegar farið að vekja athygli víða og hentar vel öllum sem hafa áhuga á Íslandi og náttúru þess.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing