Leyniþjónustumaður í þjónustu bandarísku leyniþjónustunnar, sem starfaði við persónuvernd varaforseta Bandaríkjanna, hefur verið settur í tímabundið leyfi eftir að hann var staðinn að því að veita blaðamanni í dulargervi viðkvæmar öryggisupplýsingar.
James O’Keefe, fyrrum höfuðpaur Project Veritast, sem sérhæfði sig í rannsóknarblaðamennsku þar sem blaðamaður fer í dulargervi og fær fólk til að játa ótrúlegustu hluti, birti myndband þar sem umræddur starfsmaður, Tomas Escotto, var gripinn við að lýsa öryggisgæslu og áætlun JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, í smáatriðum.
Í upptökunum greinir Escotto einnig frá öryggisráðstöfunum sem eru framkvæmdar áður en varaforsetinn mætir á staði, auk þess sem hann á að hafa sagt frá framtíðarferðalögum, stundum með nokkurra daga fyrirvara.
Þá sendi hann jafnframt ljósmyndir innan úr Air Force Two á meðan hann var um borð með varaforsetanum.
Starfsmaðurinn viðurkenndi í samtölunum að hann hefði undirritað trúnaðaryfirlýsingar sem banna starfsmönnum að birta slíkar upplýsingar, en það hindraði hann ekki í að láta allt flakki á því sem hann hélt að væri rómantískt stefnumót.
Stuðningsmaður Biden
Í upptökunum lét Escotto einnig í ljós pólitískar skoðanir sínar, þar sem hann sagðist hafa kosið Joe Biden í forsetakosningum og lýsti andstöðu við innflytjendastefnu núverandi stjórnar.
Þar hafði hann meðal annars niðrandi orð um innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna.
Að sögn O’Keefe var haft samband við bandarísku leyniþjónustuna áður en efnið var birt og voru viðkvæmustu upplýsingarnar fjarlægðar að beiðni yfirvalda.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur Tomas Escotto verið settur í leyfi og öryggisheimildir hans hafa verið felldar úr gildi og aðgangi hans að byggingum og tölvukerfum leyniþjónustunnar verið lokað á meðan málið er rannsakað.
Málið er nú til formlegrar skoðunar hjá bandarískum yfirvöldum.
BREAKING: U.S. Secret Service Agent Assigned to VP JD Vance Leaks Sensitive Security Information to Undercover Reporter.
Escotto is a holdover from the Biden administration and stated that he voted for Joe Biden, while expressing opposition to ICE & the Trump administration’s… pic.twitter.com/AyAjrt3XY4
— James O’Keefe (@JamesOKeefeIII) January 13, 2026