FBI rannsakar eldsprengjur sem fundust í Tesla umboði í Texas

Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur hafið rannsókn og stofnað sérstakt teymi eftir að margar eldsprengjur fundust við Tesla-söluaðila í Austin í Texas snemma á mánudagsmorgun.

Lögreglan í Austin svaraði útkalli á Tesla umboði þar sem grunsamlegur búnaður fannst og sprengjusérfræðingar voru kallaðir til.

Auglýsing

Samkvæmt yfirlýsingu lögreglu reyndust tækin vera eldsprengjur, og voru þær fjarlægðar.

„FBI mun sækja þá til saka sem fremja ofbeldi, skemmdarverk eða innanlands hryðjuverk, eins og árásirnar sem beinst hafa að Tesla,“ sagði FBI í yfirlýsingu til ABC News.

Bylgja um allan heim

Árásin í Austin er hluti af víðtækri bylgju skemmdarverka gegn Tesla sölustöðum, rafmagnsbílum og hleðslustöðvum víðsvegar um heim.

Tilkynnt hefur verið um svipuð áform í borgum á borð við Las Vegas, Seattle, Kansas City og Charleston.

Atvikin hafa aukist eftir að Elon Musk tók við embætti í stjórn Trump forseta, þar sem hann leiðir nýstofnað ráðuneyti sem kallast DOGE, Ráðuneyti ríkisrekstrarhagkvæmni.

Samtals hafa 48 tilvik verið tilkynnt, að sögn heimildarmanns innan löggæslunnar, sem ná yfir a.m.k. níu fylki.

Atvikin eru allt frá íkveikjum og skotárásum niður í veggjakrot.

FBI segir að gjörningarnir virðist vera verk einstaklinga sem beita einföldum aðferðum og geri litla undirbúningsvinnu.

FBI hvetur almenning til að vera á verði og tilkynna grunsamlega hegðun í grennd við Tesla söluaðila eða hleðslustöðvar.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing