Fjármálalæsi unglinga jafn mikilvægt og umferðarreglurnar

Heiðrún Jónsdóttir segir að fjármálalæsi unglinga sé grundvallaratriði og beri að kenna með sama hætti og umferðarreglur.

Hún ræddi málið í þættinum Hluthafaspjallið á Brotkast.is og lagði sagði skort á fjármálalæsi auka ójöfnuð milli barna.

Vilja læra meira um fjármál

Auglýsing

Heiðrún segir niðurstöðu málþings og ráðstefnu sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu stóðu að hafa verið skýra: þörf er á auknu fjármálalæsi.

Hún bendir á að þegar ungmenni séu spurð hvort þau hefðu viljað læra meira um fjármálalæsi segist um 90 prósent þeirra viljað hafa fengið meiri fræðslu en raun ber vitni.

Samanburður við umferðarreglur

Að mati Heiðrúnar er ósamræmi í því hvernig samfélagið nálgast undirbúning barna fyrir lífið.

Hún segir að börn séu ekki send út í umferðina nema þau kunni umferðarreglurnar, en á sama tíma sé stór hluti ungmenna sendur út í lífið án grunnþekkingar á fjármálum.

Ójöfnuður eftir bakgrunni og skólahverfum

Heiðrún telur aukið fjármálalæsi eina bestu leiðina til að jafna stöðu barna.

Hún segir óþolandi að börn læri mismikið eftir bakgrunni foreldra og því í hvaða skólahverfi þau búa, þar sem það hafi bein áhrif á framtíðarmöguleika þeirra.

Þreytist ekki á að halda þessu á lofti

Heiðrún segir mikilvægt að halda umræðunni áfram og gefast ekki upp í baráttunni fyrir auknu fjármálalæsi ungmenna.

Hún segist ekki þreytast á að flytja þessi skilaboð, enda snerti málið allt samfélagið.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing